Til baka

NIB fjármagnar heilsutengd þróunarverkefni Reita

17 apríl 2026

Reitir hf. hafa undirritað samkomulag um 4,4 ma. kr. verðtryggða lánsfjármögnun frá Norræna fjárfestingarbankanum, NIB, sem styður við tvö uppbyggingarverkefni undir heilsutengda starfsemi.

Öldrun þjóðarinnar, takmarkað sjúkrahúsrými, og langir biðlistar eftir valkvæðum aðgerðum og sérfræðiþjónustu eru áskoranir sem íslenskt heilbrigðiskerfi stendur frammi fyrir. Eftirspurn eftir hjúkrunarrýmum er einnig umtalsverð, en á Íslandi eru færri hjúkrunarrými á hverja 1.000 íbúa 65 ára og eldri samanborið við önnur Norðurlönd. Spár benda til þess að fjöldi rýma þurfi að tvöfaldast fyrir árið 2040 til að mæta þörfum framtíðarkynslóða.

Fjármögnunin frá NIB nær til 10 ára og mun styðja við uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili við Nauthólsveg og læknamiðstöð við Ármúla 7-9 en heildarkostnaður verkefnanna er um 8,8 ma. kr. Verkefnin eru til þess fallin að mæta áskorunum í heilbrigðiskerfinu og falla vel að stefnu Reita um að þróa og byggja upp fasteignir sem þörf er á í samfélaginu.

Hjúkrunarheimili við Nauthólsveg

Við Nauthólsveg 50 stendur yfir umbreyting á skrifstofuhúsnæði í hjúkrunarheimili sem mun rúma 87 íbúa og er áætlað að það taki til starfa fyrri hluta árs 2027. Í maí 2025 skrifuðu Reitir undir leigusamning við Ríkiseignir til 20 ára um útleigu á húsnæðinu. Framkvæmdir hófust strax í kjölfarið og miðar þeim vel. Velferð íbúa og starfsfólks, aðgengi fyrir alla, góð innivist og skjól- og sólrík útisvæði eru höfð að leiðarljósi við hönnun nýja hjúkrunarheimilisins.

Upprunalegur hönnuður hússins við Nauthólsveg 50-52 er Gísli Halldórsson arkitekt en Arkís eru arkitektar yfirstandandi umbreytingar á hluta hússins úr skrifstofum í hjúkrunarheimili.

Heilbrigðisþjónusta og skurðaðgerðir í Ármúla

Uppbygging á nýrri læknamiðstöð í Ármúla 7 og 9 fyrir Klíníkina eykur afkastagetu í skurðaðgerðum um 50% með viðbót tveggja skurðstofa, tveggja aðgerðastofa fyrir minni háttar aðgerðir, stækkaðri legudeild og 28 læknastofum. Stærra húsnæði og bætt aðstaða munu veita skjótari aðgang að aðgerðum sem ekki eru bráðar og sérfræðitímum, og hjálpa þannig til við að létta álagi á opinbera heilbrigðiskerfið.

Ný læknamiðstöð við Ármúla 7-9.

André Küüsvek, forseti og forstjóri NIB:

„Fjárfestingin er liður í að bregðast við þeim áskorunum sem íslenska heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir og tryggja íslensku þjóðinni hágæðaþjónustu. Auk þess mun skilvirkari og skjótari aðgangur að hjúkrunarheimilum styðja sveitarfélög í að viðhalda jákvæðri fjárhagslegri afkomu.“

Undirritun í höfuðstöðvum NIB í Helsinki (vinstri til hægri): Daniel Kangasmaa, Einar Þorsteinsson, Guðni Aðalsteinsson, Luca de Lorenzo, Sari Cabell, Jens Hellerup, Stefán Jón Friðriksson

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita:

„Reitir byggja á áratuga langri reynslu í fasteignageiranum og fara með stóraukin umsvif í þróun með áherslu á uppbyggingu sem gagnast samfélaginu. Þessi tvö verkefni eru gott dæmi um hvernig hægt er að umbreyta núverandi byggingum á skilvirkan hátt til að mæta aðkallandi eftirspurn eftir hjúkrunarheimilum og húsnæði fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Fjármögnun NIB styður við stefnu okkar um að þróa hágæða fasteignir fyrir opinbera og einkarekna aðila í heilbrigðisþjónustu.“

Um NIB

NIB er alþjóðleg fjármálastofnun Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litáens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn fjármagnar verkefni á Norðurlöndunum og Eystrasaltssvæðinu sem stuðla að aukinni framleiðni og koma umhverfinu til góða. Höfuðstöðvar bankans eru í Helsinki en auk þess hefur bankinn svæðismiðstöð í Riga. NIB er með hæsta mögulega lánshæfismatið AAA/Aaa, hjá S&P Global Ratings og Moody’s.

Um Reiti

Reitir hf. er íslenskt hlutafélag og hefur verið skráð á Nasdaq Iceland síðan 2015. Starfsemi Reita felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir félagsins eru í dag rúmlega 150 talsins og safnið er um 490 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, Hótel Borg, Hotel Hilton Nordica og Hótel Reykjavík Natura auk skrifstofubygginga við Höfðabakka 9 og að Vínlandsleið. Þar að auki er félagið virkt í fasteignaþróun og fer með þróun og uppbyggingu á yfir 1.000 íbúðum og 130.000 fermetrum af atvinnuhúsnæði. Tekjur félagsins námu 18,2 ma. kr. árið 2025 og fjárfestingareignir þess voru metnar á 252 ma. kr. við árslok.

Upplýsingar veitir Lára Hilmarsdóttir, samskiptastjóri Reita, lara@reitir.is, s: 825-8422

Ný læknamiðstöð Klíníkunnar við Ármúla verður útbúin tveimur nýjum skurðstofum, tveimur aðgerðastofum, apóteki, aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun, fjölda læknastofa, meltingarklíník og bættri aðstöðu fyrir starfsfólk.

Fleiri fréttir

Viðhorfskönnun Reita stendur yfir

Þjónustukönnun Reita stendur yfir þessa dagana. Könnun er framkvæmd af Prósent og við hvetjum alla viðskiptavini til þess að taka þátt.

Ársskýrsla 2025 er komin út

Í skýrslunni má finna góða og yfirgripsmikla umfjöllum um starfsemi Reita, metnaðarfulla vaxtarstefnu félagsins, verkefni og áfanga á árinu, sjálfbærni og hvert við stefnum til framtíðar.

Reitir skila 8,5 tonnum af teppaflísum í hringrásarverkefni

Reitir eru fyrsta fyrirtækið á Íslandi til þess að taka þátt í ReStart, umfangsmiklu hringrásarverkefni á vegum Tarkett í samstarfi við Gólfefnaval.