Drangar opna verslunarkjarna í húsnæði Reita á Korputúni
Reitir hf. og Drangar hf. undirrituðu í dag leigusamning um 5.500 fermetra verslunarrými á Korputúni. Drangar munu opna þar öflugan verslunarkjarna og starfrækja verslanir á borð við Nettó, Lyfjaval, Kjötkompaní og Brauð og Co., auk þess sem kynntar verða til leiks glænýjar verslanir á Íslandi sem Drangar munu reka og bjóða meðal annars upp á snyrtivörur, ritföng og heimilisvörur.

Frá vinstri til hægri: Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Reitum, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri Nettó, Kjörbúðarinnar og Prís, og Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Allt fyrir heimilið - og meira til á Korputúni
Verslunarkjarninn er á D-reit Korputúns sem er samtals rúmlega 5.500 fermetrar í fjórum lágreistum byggingum, Korputún 2 - 8. Er þar um að ræða fyrsta áfangann í metnaðarfullri uppbyggingu á vegum Reita á svæðinu. Framkvæmdir við reitinn standa yfir og stefnt er að opnun verslananna sumarið 2027.
Drangar munu annast rekstur allra verslunarrýma á reitnum. Fjölbreytt úrval verslana verður í boði. Matvöruverslunin Nettó opnar í Korputúni 6 og þar verður jafnframt glæsilegt útibú sælkeraverslunarinnar Kjötkompaní. Við hlið þess opnar handverksbakaríið Brauð & Co.
Í Korputúni 8 opnar Lyfjaval verslunar- og þjónustuútibú en þar verður einnig starfræktur nútímalegur veitingastaður. Í Korputúni 2 opna síðan tvær þekktar evrópskar verslanir í fyrsta sinn á Íslandi sem munu meðal annars bjóða upp á snyrtivörur, heimilisvörur og ritföng.
Drangar eru eitt stærsta verslunar- og þjónustufyrirtæki landsins og í eigu þess eru meðal annars matvöruverslanirnar Nettó, SPAR, Prís, Krambúðin, Kjörbúðin og 10–11.
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga
„Við teljum staðsetningu verslunar- og þjónustukjarna við Korputún afar heppilega því hún mætir vel þörfum íbúa og ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu. Það er okkur mikilvægt að vera þátttakandi í uppbyggingu Korputúns og við erum sannfærð um að þar verður öflugur áfangastaður fyrir verslun og þjónustu. Markmið okkar er að bjóða viðskiptavinum fjölbreytt úrval þjónustu og verslana sem mætir ólíkum þörfum á einum stað. Það er sérstaklega ánægjulegt að geta kynnt tvær nýjar verslanir á Íslandi samhliða opnuninni og þannig aukið enn frekar valkosti íslenskra neytenda og erlendra ferðamanna sem sækja landið heim. Við hlökkum til að taka á móti fyrstu gestunum sumarið 2027.“
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita
„Við bjóðum Dranga hjartanlega velkomin á Korputún. Í nánu samstarfi munum við skapa fallegan verslunarkjarna í mannvænu umhverfi þar sem Drangar munu bjóða upp á fjölbreytt og vandað úrval verslana fyrir íbúa og alla sem eiga leið um svæðið. Áform Dranga um að kynna tvær nýjar verslanir til landsins við opnun á Korputúni falla einstaklega vel að framtíðarsýn svæðisins. Korputún er kjörinn staður fyrir framsækin fyrirtæki sem vilja starfa í nútímalegu og sjálfbæru umhverfi með hag viðskiptavina og starfsfólks að leiðarljósi.“
Korputún – atvinnukjarni í fremsta gæðaflokki
Reitir annast þróun og uppbyggingu Korputúns, sem er á mörkum Mosfellsbæjar og Reykjavíkur. Þegar uppbyggingu verður lokið mun svæðið ná yfir um 90.000 fermetra.
Reitir annast þróun og uppbyggingu Korputúns, sem er á mörkum Mosfellsbæjar og Reykjavíkur. Þegar uppbyggingu verður lokið mun svæðið ná yfir um 90.000 fermetra.
Á Korputúni verður í boði bæði sérsniðið og tilbúið atvinnuhúsnæði, allt frá 300 upp í 10.000 fermetra, í tveggja til þriggja hæða byggingum. Skipulag svæðisins gerir ráð fyrir fjölbreyttri blöndu verslunar, þjónustu, skrifstofa og létts iðnaðar. Að lokinni uppbyggingu D-reits hefjast framkvæmdir á E-reit þar sem meðal annars verður rými fyrir þjónustustarfsemi og skrifstofur.
Korputún verður fyrsti sjálfbærnivottaði atvinnukjarninn á Íslandi með BREEAM Communities-vottun. Vottunin tryggir að uppbyggingin byggi á skýrum viðmiðum um samfélagsleg, umhverfisleg og efnahagsleg gæði.
Sérstaða Korputúns felst meðal annars í því að vernda vatnsgæði Korpu, sem rennur frá Úlfarsfelli í gegnum svæðið, með gegndræpu yfirborði. Einnig verður fjölskrúðugt lífríki verndað með markvissu plöntuvali og að lágmarki 80% þakflata verða gróðurþakin. Gert er ráð fyrir gróðri um allt svæðið sem stuðlar að bættri líðan starfsfólks og gesta.
Mikil áhersla er einnig lögð á samgöngur og aðgengi. Svæðið verður með góðu framboði bílastæða, vönduðum hjóla- og göngustígum og fyrirhugað er að Borgarlínan liggi um Korputún með stoppistöð við verslunarkjarnann.

