Til baka

Reitir áforma uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri

15 júní 2026

Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.

Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir munu annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins.

"Við fögnum tækifærinu að fá að leggja þekkingu og reynslu okkar á vogarskálarnar við að byggja upp nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili á Akureyri. Þróun fasteigna og innviða sem samfélagið þarfnast er liður í framtíðarsýn Reita og öldrun þjóðar kallar á stórtæka aukningu hjúkrunarheimila víðs vegar um land. Við munum leggja metnað í örugga og hraða uppbyggingu svo mæta megi þörfinni sem fer vaxandi dag frá degi, segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita."

Hjúkrunarheimilið verður byggt með samblandi af forsmíðuðum og forsteyptum einingum og munu Reitir ráðast í hönnun og framkvæmdirnar í samstarfi við Art-Verk ehf. sem búa yfir farsælli reynslu af slíkri húsnæðisuppbyggingu.

Þessi byggingaraðferð gerir Reitum kleift að stytta framkvæmdatíma, auka sveigjanleika í hönnun og tryggja gæði húsnæðisins.

Alls bárust 10 tilboð í verkefnið frá fimm aðilum og var tilboð Reita metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar.

Eftir töku tilboðs verða frumuppdrættir leigusala fullunnir í samstarfi við rekstraraðila og FSRE. Að því loknu hefst vinna við gerð aðaluppdrátta og fullnaðarhönnun áður en framkvæmdir hefjast svo að fullu.

Fleiri fréttir

Reitir semja við Þúsund fjalir um neyðarþjónustu

Reitir hafa gert samning við Þúsund fjalir um neyðarþjónustu allan sólarhringinn.

Reitir áfram framúrskarandi og til fyrirmyndar

Reitir eru í þriðja sæti yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 og hljóta viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki ellefta árið í röð.

Reitir kynna tillögu að nýju skipulagi fyrir Spöngina

Tillagan gerir ráð fyrir þróun á verslunar- og þjónustukjarna sem styrkir Spöngina sem lifandi og öfluga hverfismiðju, uppbyggingu íbúða af ólíkri stærð sem henta íbúum á ólíkum æviskeiðum og grænum almenningssvæðum.