Til baka

Íslandshótel skrifa nýjan kafla fyrir sögufræg hótel

2 september 2026

Tvö sögufræg hótel sem hafa sett sinn svip á borgina í áratugi hefja nýjan kafla í dag þegar Íslandshótel taka formlega við rekstrinum. Það eru Hilton Reykjavík við Suðurlandsbraut og Hótel Reykjavík Askja við Nauthólsveg.

Formleg afhending hótelana fór fram 1. september 2026 (vinstri til hægri): Hrafnhildur Karlsdóttir, hótelstjóri Hótel Reykjavík Öskju, Jón Kolbeinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Reitum, Ingólfur Haraldsson, svæðisstjóri hótela í Reykjavík hjá Íslandshótelum, Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Ólöf Guðmundsdóttir, hótelstjóri Hilton Reykjavík, Hjörtur Valgeirsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Íslandshótelum, Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Reitum

Reitir afhentu lyklana að hótelunum með athöfn í dag en Reitir og Íslandshótel ætla að ráðast í viðamiklar endurbætur á hótelunum tveimur, meðal annars endurnýjun hótelherbergja. „Við hlökkum til að hlúa áfram að þessum hótelperlum í samstarfi við nýja og stórhuga rekstraraðila,“ segir Guðni Aðalsteinsson. Leigusamningur um hótelin var undirritaður í apríl fyrr á þessu ári. „Þetta eru spennandi tímamót.“

Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, tekur í sama streng. „Þetta eru mikil tímamót fyrir Íslandshótel. Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Askja eiga bæði ríka sögu og sterka hefð í Reykjavík og við hlökkum til að byggja áfram á þeim grunni með starfsfólki hótelanna og Reitum,“ segir Davíð.

Þessi sömu hótel hafa borið fleiri nöfn í gegnum tíðina. Fyrir skemmstu hétu þau Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura en margir borgarbúar muna kannski eftir upprunalegu nöfnunum, Hótel Esja og Hótel Loftleiðir. Gísli Halldórsson arkitekt hannaði bæði hótelin en eftir hann stendur fjöldi þekktra bygginga, þar á meðal íþróttaleikvangurinn í Laugardal og Laugardalshöll.

Ljósmyndari: Ólafur K. Magnússon / Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Hótel Loftleiðir var eitt af þekktustu hótelum Reykjavíkur og hefur gengið undir fleiri nöfnum í gegnum tíðina. Í dag þekkjum við húsið sem Hótel Reykjavík Askja en sagan um Loftleiðir lifir enn.

Vaxandi fjöldi ferðamanna hefur átt næturstað hjá Íslandshótelum sem er stærsta hótelkeðja landsins. Með Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Askja rekur félagið nú 19 hótel víðs vegar um landið, samtals um 2.400 herbergi. Hilton Reykjavík er rekið undir Hilton-vörumerkinu en önnur hótel félagsins undir vörumerkjum Íslandshótela.

Svana Huld , framkvæmdastjóri viðskiptavina færði Ólöfu , hótelstjóra Hilton Reykjavík, tvær hljómplötur með lögum Bob Dylans að gjöf við tilefnið.

Hrafnhildur, hótelstjóri Hótel Reykjavík Öskju, tekur á móti taflborði og taflmönnum að gjöf frá Svönu við afhendingu hótelana.

Hönnuð af arkitekt sem mótaði Reykjavík

Gísli Halldórsson var afkastamikill og verðlaunaður arkitekt á langri starfsævi og átti sterkan þátt í að móta uppbyggingu Reykjavíkur á fyrstu áratugum lýðveldisins. Auk hótelanna tveggja standa eftir hann fjölmörg þekkt mannvirki, þar á meðal Tollhúsið í miðborg Reykjavíkur, lögreglustöðin í Reykjavík, fjölmörg einkennandi raðhús, einbýlishús og verkamannabústaðir, áðurnefnd íþróttamannvirki og lengur mætti telja. Verk hans eru gjarnan kennd við fúnksjónalisma og hann lofaður fyrir léttleika, smekklegar útfærslur, einkennandi stílbrögð og jafnvel hugsjón.

Ljósmyndari: Ari Kárason / Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Gísli Halldórsson teiknaði bæði Hótel Esju og Hótel Loftleiðir og kom að hönnun fjölda annarra þekktra bygginga í Reykjavík. Meðal verka hans eru Laugardalshöllin og Íþróttaleikvangurinn í Laugardal.

Hótel Loftleiðir er nú Hótel Askja

Árið 1962 var fyrsta skóflustungan tekin að stórbyggingu sem átti að hýsa skrifstofur Loftleiða og hótel á Reykjavíkurflugvelli. Hótelbyggingin reis á árunum 1965-1966 og var stækkuð til muna með nýrri álmu sem opnaði árið 1971.

Fjölmargt þekkt fólk hefur gist á hótelinu. Þegar Bobby Fischer og Boris Spassky þreyttu heimsmeistaraeinvígið í skák 1972 bjó sá fyrrnefndi allan tímann í svítu á Hótel Loftleiðum og þótti nokkuð sérviskulegur í háttum. Hann var gjarnan á fótum fram undir morgun og fór þá í langar gönguferðir um nágrennið en svaf svo fram eftir degi. Þetta varð oft til þess að hann mætti seinn til leiks í einvíginu og hafði jafnvel ekki fengið sér morgunmat. Í ævisögu Alfreðs Elíassonar, Alfreðs Saga og Loftleiða eftir Jakob F. Ásgeirsson, segir Alfreð frá því að Bobby hafi skilið eftir hlýja kveðju við brottför sína: „Ég þakka stjórn og starfsfólki Hótel Loftleiða fyrir hjálpsemi og vinsemd og góða og hlýja umönnun meðan ég bjó á hótelinu.“

Ljósmyndari: Bára Kristinsdóttir / Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Skák á Hótel Loftleiðum. Bobby Fischer bjó í svítu á hótelinu þegar hann tefldi heimsmeistaraeinvígið við Boris Spassky árið 1972. Hann var gjarnan á fótum fram undir morgun og fór þá í langar gönguferðir um nágrennið, með þeim afleiðingum að hann mætti seinn til leiks.

Hótelið var endurnýjað árið 2011 en á því eru 220 herbergi og byggir hvert þeirra á einu þema sem sótt er til íslenskrar náttúru; jarðhita, norðurljósa, eldvirkni og vatns. Nýja nafnið Hótel Askja er sömuleiðis vísun til íslenskrar náttúru og Öskjuhlíðarinnar sem veitir róandi græna umgjörð um næsta nágrenni hótelsins sem er þó steinsnar frá miðbænum.

Lífsgæðakjarni rís við Nauthólsveg

Á þessu svæði standa Reitir nú að þróun lífsgæðakjarna sem verður fyrstur sinnar tegundar á Íslandi. Kjarninn mun sameina íbúðir, þjónustu, verslun, skóla, og hjúkrunarheimili ásamt sameiginlegum rýmum.

Torg, inngarðar og græn svæði munu mynda eina heild sem ný hverfismiðja fyrir byggðina í kring. Auk þess er lögð áhersla á góða tengingu við útivistarsvæði í næsta nágrenni svo sem Öskjuhlíð og Ægissíðu. Kjarninn mun tengja saman nálæg hverfi og hjólandi og gangandi er gert hátt undir höfði í skipulagi svæðisins sem gerir einnig ráð fyrir borgarlínustöð í miðju svæðisins.

Slapp við fréttafólkið á reiðhjóli

Hótel Esja var tekið í notkun á árunum 1970-1971 og var þá í eigu bílakóngsins Kristjáns Kristjánssonar frá Akureyri. Síðar komst það í eigu Flugleiða en 1999 var það keypt af forvera Reita, fasteignafélaginu Þyrpingu.

Fjölmargir heimsþekktir einstaklingar hafa gist á hótelinu. Til dæmis gisti Bob Dylan þar sumarið 1990 vegna tónleika sinna í Laugardalshöll. Blaðamenn og aðdáendur fjölmenntu við Laugardalshöll til að sitja fyrir stórstjörnunni en hann skaut þeim ref fyrir rass. Hann hafði þá fengið lánað reiðhjól á hótelinu og hjólaði á svæðið eftir annarri leið en fólk bjóst við. Hann komst því óséður bakdyramegin inn í höllina.

Ljósmyndari: Kristjón Haraldsson / Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Veitingastaðurinn á Hótel Esju þótti ekkert slor og ætla má að Bob Dylan hafi setið hér að snæðingi. Enn er lögð áhersla á hágæða matseld á Hilton Reykjavík eins og hótelið heitir í dag.

Skömmu eftir aldamót var hótelið stækkað um nær helming og húsinu öllu gjörbreytt en útlitsbreytingin var í höndum Ásgeirs Ásgeirssonar arkitekts. Eftir þær umbætur fékk það nafnið Nordica Hotel og var þá orðið stærsta hótel Íslands með 284 herbergjum. Segja má að það hafi breyst úr dæmigerðu ferðamannahóteli í ráðstefnu- og viðskiptahótel með ellefu ráðstefnu- og veitingasölum, sýningarsvæði og líkamsræktarstöð. Á meðal nýjunga voru tuttugu og þrjár svítur á níundu hæð hótelsins, þar af tvær glæsiíbúðir.

Fleiri fréttir

Drangar opna verslunarkjarna í húsnæði Reita á Korputúni

Reitir hf. og Drangar hf. undirrituðu í dag leigusamning um 5.500 fermetra verslunarrými á Korputúni. Drangar munu opna þar öflugan verslunarkjarna og starfrækja verslanir á borð við Nettó, Lyfjaval, Kjötkompaní og Brauð og Co., auk þess sem kynntar verða til leiks glænýjar verslanir á Íslandi sem Drangar munu reka og bjóða meðal annars upp á snyrtivörur, ritföng og heimilisvörur. 

Reitir áforma uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri

Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.

Reitir og Hjallastefnan í samstarf um leik- og grunnskóla í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg

Reitir og Hjallastefnan hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um þróun og uppbyggingu á nýjum leik- og grunnskóla í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg sem rís á vegum Reita. Hjallastefnan mun flytja skólastarf sitt í Reykjavík fyrir um 400 börn á leikskólaaldri og í 1.-7. bekk grunnskóla í umhverfisvæna leik- og grunnskólabyggingu í lífsgæðakjarnanum.