Til baka

Reitir fjárfesta fyrir 1,7 ma.kr. í Hvörfunum Kópavogi

25 október 2024

Reitir hafa undirritað samkomulag um kaup félagsins á fasteignum í atvinnuhúsnæði að Tónahvarfi 3 í Kópavogi. Kaupin eru í samræmi við stefnu Reita um vöxt eignasafnins.

Tónahvarf 3

Fasteignirnar eru um 3.750 fm. að stærð og hýsa fjölbreyttan rekstur nokkurra leigutaka.

Heildarvirði kaupanna er 1,7 ma.kr. sem verður að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé. Leigutekjur á ársgrunni nema um 150 m.kr. og leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 120 m.kr. á ársgrundvelli. 

Áætlað er að afhending fasteignanna muni fara fram 1. desember 2024. Afhending mun fara fram þegar fyrirvörum um viðskiptin hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður hefðbundinna áreiðanleikakannana og samþykki stjórnar Reita fasteignafélags hf. fyrir kaupunum.

Upplýsingar veita

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita fasteignafélags í síma 624 0000 og á gudni@reitir.is.
Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdarstjóri Fjárfestinga og greiningar í síma 659 1700 og á kristofer@reitir.is.

Tónahvarf 3

Fleiri fréttir

Reitir eru framúrskarandi og til fyrirmyndar

Reitir eru í 3. sæti meðal 1.720 fyrirtækja sem eru til fyrirmyndar samkvæmt samantekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar.

Deiliskipulag fyrir Kringlureit samþykkt af borgarráði

Tillaga Reita um að byggja 420 íbúðir í mannvænu og lifandi umhverfi getur orðið að veruleika.

Torgið hugmyndasamkeppni haldin í fyrsta skipti

Fjórtán lið skipuð nemendum úr Háskólanum í Reykjavík, tóku þátt í Torginu, hugmyndasamkeppni Reita og HR, sem haldin var í fyrsta skipti dagana 8.-11. október.