Til baka

Fyrirmyndarstjórnarhættir í ellefu ár samfleytt

12 ágúst 2026

Í ellefu ár samfleytt hafa Reitir hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum.

Öflugir stjórnarhættir eru grundvöllur trausts og langtímaárangurs. Við erum virkilega stolt af þessum árangri í rúman áratug en Reitir tóku fyrst á móti viðurkenningunni árið 2015.

Unnur Erla Jónsdóttir, yfirlögfræðingur Reita, tók við viðurkenningunni fyrir hönd félagsins frá Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, við hátíðlega athöfn í Reykjavík.

Viðurkenningin er veitt af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq Iceland hf., Samtökum atvinnulífsins og Stjórnvísi, og í ár voru það átján fyrirtæki sem hlutu viðurkenninguna.

Í ár hlutu 18 fyrirtæki þessa viðurkenningu, þar á meðal Reitir.

Fleiri fréttir

Íslandshótel skrifa nýjan kafla fyrir sögufræg hótel

Tvö sögufræg hótel sem hafa sett sinn svip á borgina í áratugi hefja nýjan kafla í dag þegar Íslandshótel taka formlega við rekstrinum. Það eru Hilton Reykjavík við Suðurlandsbraut og Hótel Reykjavík Askja við Nauthólsveg.

Drangar opna verslunarkjarna í húsnæði Reita á Korputúni

Reitir hf. og Drangar hf. undirrituðu í dag leigusamning um 5.500 fermetra verslunarrými á Korputúni. Drangar munu opna þar öflugan verslunarkjarna og starfrækja verslanir á borð við Nettó, Lyfjaval, Kjötkompaní og Brauð og Co., auk þess sem kynntar verða til leiks glænýjar verslanir á Íslandi sem Drangar munu reka og bjóða meðal annars upp á snyrtivörur, ritföng og heimilisvörur. 

Reitir áforma uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri

Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.