Til baka

Verslun Rauða krossins í Kringlunni

Verslun Rauða krossins í Kringlunni

Verslun Rauða krossins á Bíógangi í Kringlunni er sjötta verslun félagsins á höfuðborgarsvæðinu og sú fjórtánda á landsvísu. Fataverslanirnar, þar sem seldar eru notaðar vörur, eru ein helsta fjáröflun Rauða krossins og afar mikilvægar sem slíkar. Þegar viðskiptavinir kaupa vörur hjá Rauða krossinum öðlast þær endurnýtt líf, stuðlað er að umhverfisvernd, buddan verður þyngri og allur ágóði fer 100% í mannúðarmál.

Í öllum verslunum Rauða krossins sjá sjálfboðaliðar um afgreiðslu og er alltaf þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða, áhugasamir geta farið inn á heimasíðu félagsins www.raudikrossinn.is fyrir nánari upplýsingar.

Reitir bjóða verslun Rauða krossins velkomna til starfa í Kringlunni.

Verslun Rauða krossins í Kringlunni

Meira um áherslur í sjálfbærnimálum og samfélagsverkefni

BREEAM Communities vottað skipulag

Með því að fylgja kröfum BREEAM Communities staðalsins í skipulagningu þróunarreita tryggjum við að hugað sé að sjálfbærni, samnýtingu og heilnæmu umhverfi alveg frá grunni.

Húsnæði Umhverfisstofnunar við Suðurlandsbraut 24. Skrifstofan var fyrsta húsnæðið á Norðurlöndum til að hljóta Svansvottun fyrir endurbætur á húsnæði.
Svansvottaðar endurbætur

Skrifstofa Umhverfisstofnunar við Suðurlandsbraut 24 var fyrsta húsnæðið á Norðurlöndum til að hljóta Svansvottun fyrir endurbætur á húsnæði.