Aukin fjölbreytni í atvinnulífinu með Specialisterne í 10 ár
Reitir hafa stutt Specialisterne með húsnæði í Síðumúla í nærri áratug.

Reitir hafa stutt Specialisterne með húsnæði í Síðumúla í nærri áratug. Specialisterne er sjálfseignarstofnun sem hefur það að markmiði er að aðstoða ungt fólk á einhverfurófi við að komast á vinnumarkaðinn.
"Starfsemin í Síðumúla byggist á því að einstaklingarnir mæta daglega og fá aðstoð við að þjálfa upp styrkleika sýna ásamt því að tekið er á veikleikum. Einstaklingsmiðuð áætlun er gerð þar sem þjálfuð er tölvufærni, farið í líkamsrækt og mikil áhersla er lögð á stundvísi og mætingu. Endamarkmiðið er atvinnuþáttaka einstaklinganna og fer ríflega helmingur í vinnu. Aðrir fara í áframhaldandi nám eða önnur úrræði. "
Specialisterne fögnuðu 10 ára starfsafmæli í apríl 2021. En stofnun Specialisterne á Íslandi á sér nokkurn aðdraganda. Snemma árs 2010 voru áhugasamir foreldrar í Einhverfusamtökunum í leit að úrræði fyrir fullorðna einstaklinga á einhverfurófinu. Gerð var könnun á því hvort það væri vænlegt að stofna félag í anda Specialisterne í Danmörku, hér á Íslandi. Evrópskur styrkur fékkst til verkefnisins og með aðstoð Einhverfusamtakana og Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis fór verkefnið af stað.
Skrifstofa Specialisterne á Íslandi opnaði á alþjóðlegum degi einhverfu, þann 2. apríl 2011. Specialisterne tóku á móti sínum fyrstu skjólstæðingum þann 4. ágúst sama ár. Frá þeim tíma hafa vel á annað hundrað einstklingar notið stuðnings Specialisterne í lengri eða skemmri tíma og á þriðja tug þeirra hafa fengið launaða vinnu auk þess sem margir hafa snúið sér að námi. Specialisterne treysta nú að mestu eða öllu leiti á styrki eða frjáls framlög til að halda starfseminni gangandi. Specialisterne hafa notið stuðnings Reita í formi húsnæðis allt frá upphafi auk þess að hafa í upphafi fengið rausnarlega styrk frá VIRK.
Uppfært í nóvember 2022.