Uppbygging við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit
Reitir fasteignafélag hafa gert uppbyggingarsamkomulag við Reykjavíkurborg um þróun og uppbyggingu á fjölbreyttu íbúðar- og atvinnuhúsnæði við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit. Þróunarverkefnin eiga það sammerkt að áhersla verður lögð á samgönguvænt skipulag, sjálfbæra þróun og gæði rýma utandyra jafnt sem innandyra.

Hönnun allra þriggja þróunarverkefnanna verður í takt við borgarhönnunarstefnu Reykjavíkur. Deiliskipulagsgerð stendur yfir eða er í undirbúningi og geta íbúða- og fermetrafjöldi tekið einhverjum breytingum í því ferli.
„Við fögnum þessum mikilvæga áfanga við þrjú metnaðarfull þróunarverkefni við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit sem hafa verið í bígerð um langt skeið eins og áður hefur komið fram. Við erum full tilhlökkunar fyrir næstu skref við að láta verkefnin raungerast og leggja þannig okkar framlag á vogarskálarnar við að mæta vaxandi kalli eftir uppbyggingu sem gagnast samfélaginu,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.
„Það er fagnaðarefni að samningar um uppbyggingu við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit í Skeifunni eru í höfn," segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. „Lífsgæðakjarni við Nauthólsveg er einkar spennandi verkefni sem byggir á nýrri nálgun í húsnæðisuppbyggingu sem sameinar íbúðir, þjónusta, heilbrigðis- og félagsleg aðstoð ásamt sameiginlegum rýmum. Markmiðið er að skapa umhverfi sem stuðlar að sjálfstæði, félagslegri virkni og lífsgæðum eldri borgara og annarra íbúa, með áherslu á fjölbreytt búsetuform. Reykjavíkurborg hefur skilgreint slíka kjarna sem framtíðarfyrirmynd að blandaðri borgarbyggð. Þá fögnum við sérstaklega metnaðarfullri uppbyggingu íbúða, verslunar og þjónustu í Spönginni í Grafarvogi og á Metróreit í Skeifunni, sem fellur undir samþykkta húsnæðisáætlun fyrir Reykjavíkurborg og stefnu borgarinnar um borgarþróun til framtíðar."
Kynslóðir tengjast í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg
Við Nauthólsveg er gert ráð fyrir uppbyggingu lífsgæðakjarna sem sameinar íbúðir, þjónustu, heilbrigðis- og félagslega aðstoð ásamt sameiginlegum rýmum. Í lífsgæðakjarnanum verða útfærðar um 150-200 íbúðir af fjölbreyttri gerð, einkum fyrir íbúa 60 ára og eldri ásamt hjúkrunarheimili og um 3.600 fm. af atvinnu- og þjónusturými. Auk íbúðarhúsnæðis er áformað að byggja leikskóla fyrir um 150 börn og grunnskóla fyrir 120 börn sem koma til með að þjónusta hverfið allt.
Torg, inngarðar og græn svæði munu ásamt íbúðarhúsnæði mynda eina heild sem ný hverfismiðja fyrir byggðina í kring. Auk þess er lögð áhersla á góða tengingu við útivistarsvæði í næsta nágrenni svo sem Öskjuhlíð og Ægissíðu. Hönnun gerir ráð fyrir vetrargarði á neðstu hæð sem skapar rými til samveru allan ársins hring.
Kjarninn mun tengja saman nærliggjandi hverfi og hjólandi og gangandi er gert hátt undir höfði í skipulagi svæðisins sem gerir einnig ráð fyrir borgarlínustöð í miðju svæðisins. Takmörkuð umferð verður á yfirborði í kjarnanum og bílastæði staðsett í kjallara. Sérstaklega er hugað að samnýtingu svæða og þjónustu fyrir alla íbúa hverfisins með það markmið að tengja saman kynslóðir, auka félagslega virkni og stuðla að vellíðan og bættum lífsgæðum.
Uppbygging í hjarta Grafarvogs
Í Spönginni í Grafarvogi verður unnið að frekari þróun verslunar- og þjónustukjarna svæðisins. Uppbyggingin mun styrkja Spöngina enn frekar sem hverfismiðju með nýju íbúðarhúsnæði, aukinni þjónustu og bættum almenningsrýmum.
Gert er ráð fyrir að byggðir verði um 13.000 nýir íbúðarfermetrar, auk 1.400 fermetra af atvinnuhúsnæði sem bætast við þann verslunarkjarna sem nú þegar er til staðar og telur 9.600 fm. Heildarstærð svæðisins eykst úr 9.600 fm í um 24.000 fm.
Áhersla er lögð á að bæta gæði útisvæða og skapa torg og græn svæði. Gott aðgengi og fjölbreyttir samgöngumöguleikar styðja enn frekar við þessa nýju hverfismiðju en áformað er að ein af lykilstöðvum Borgarlínu verði við Spöngina sem liggur nú þegar við eina helstu samgönguæð Grafarvogs.
Nýtt íbúðahverfi og atvinnusvæði á Metróreit
Á Metróreit, þar sem Suðurlandsbraut og Fákafen mætast, verður unnið að uppbyggingu í takt við yfirstandandi breytingar í Skeifunni og endurskipulagningu Suðurlandsbrautar.
Í tillögunni er gert ráð fyrir 99 íbúðum, eða um 9.700 fm. í tveimur samtengdum 5-7 hæða byggingum auk 1.500 fm af verslunar- og þjónusturými á jarðhæð. Þar að auki er áformað að útfæra torg, borgargarð og almenningsrými, auk bílastæða í kjallara og á lóð.
Markmið tillögunnar er meðal annars að búa til tengipunkt fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem eiga leið í Skeifuna, tengja Laugardalinn við byggð sem rís í Skeifunni og gera samgöngur með fjölbreyttum ferðamátum um svæðið skilvirkari.


