Til baka

Viðhorfskönnun Reita stendur yfir

26 mars 2026

Nú er í gangi könnun á viðhorfi viðskiptavina til Reita og þeirri þjónustu sem félagið veitir. Markmið könnunarinnar er að greina tækifæri til umbóta, sérstaklega með það í huga að bæta þjónustu við viðskiptavini. Það er okkur mikilvægt að fá sem besta svörun og þökkum við viðskiptavinum kærlega fyrir þátttökuna sem hjálpar okkur að bæta þjónustuna.

Rannsóknarfyrirtækið Prósent sér alfarið um framkvæmd könnunarinnar en hún er send rafrænt á netföng viðskiptavina Reita frá netfanginu rannsoknir@rannsoknir.prosent.is. Hægt er að svara könnuninni í tölvu og/eða síma og það tekur um 5 mínútur að svara henni. 

Eftir að könnun lýkur mun Prósent vera okkur innan handar við að draga út einn heppinn þátttakanda sem hlýtur gjafabréf í Kringlunni að verðmæti 30.000 krónur.

Ef spurningar vakna um könnuna er hægt að hafa samband við Margréti Helgu Jóhannsdóttur, forstöðumann þjónustu Reita, á netfangið: margret@reitir.is

Fleiri fréttir

Drangar opna verslunarkjarna í húsnæði Reita á Korputúni

Reitir hf. og Drangar hf. undirrituðu í dag leigusamning um 5.500 fermetra verslunarrými á Korputúni. Drangar munu opna þar öflugan verslunarkjarna og starfrækja verslanir á borð við Nettó, Lyfjaval, Kjötkompaní og Brauð og Co., auk þess sem kynntar verða til leiks glænýjar verslanir á Íslandi sem Drangar munu reka og bjóða meðal annars upp á snyrtivörur, ritföng og heimilisvörur. 

Reitir áforma uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri

Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.

Reitir og Hjallastefnan í samstarf um leik- og grunnskóla í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg

Reitir og Hjallastefnan hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um þróun og uppbyggingu á nýjum leik- og grunnskóla í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg sem rís á vegum Reita. Hjallastefnan mun flytja skólastarf sitt í Reykjavík fyrir um 400 börn á leikskólaaldri og í 1.-7. bekk grunnskóla í umhverfisvæna leik- og grunnskólabyggingu í lífsgæðakjarnanum.