Til baka

Reitir áfram framúrskarandi og til fyrirmyndar

23 október 2026

Reitir eru í þriðja sæti á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 og hljóta jafnframt viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki ellefta árið í röð. Viðurkenningarnar endurspegla traustan rekstur félagsins og þann árangur sem starfsfólk Reita vinnur að á hverjum degi.

Í þriðja sæti af 1.780 fyrirtækjum

Alls uppfylla 1.780 fyrirtæki skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar fyrir viðurkenningunni Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri í ár. Þeim fjölgar um 3,5% milli ára og hafa aldrei verið fleiri. Reitir halda þriðja sæti listans og hljóta viðurkenninguna tíunda árið í röð.

Við matið er horft til rekstraráranna 2025 og 2024, auk þess sem tekið er tillit til ársins 2023. Fyrirtæki þurfa meðal annars að hafa skilað jákvæðri afkomu, tekjum yfir 50 milljónum króna, eignum yfir 90 milljónum króna og eiginfjárhlutfalli yfir 20%. Þá eru fleiri þættir metnir, meðal annars skil á ársreikningum.

Framúrskarandi ellefta árið í röð

Reitir hljóta viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki ellefta árið í röð. Viðurkenningin byggir á ítarlegri greiningu á fjárhag og rekstri fyrirtækja og ströngum kröfum um afkomu, fjárhagslegan styrk og áreiðanleika í viðskiptum.

Þessi samfelldi árangur endurspeglar traustan grunn félagsins og markvissa vinnu starfsfólks Reita til langs tíma.

Guðni Aðalsteinsson

Traustur rekstur skapar svigrúm til vaxtar

Í viðtali við Viðskiptablaðið í tilefni af útnefningunni segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, árangur félagsins byggja á sterku teymi, traustum viðskiptasamböndum og skýrri framtíðarsýn.

„Við byggjum ekki aðeins húsnæði heldur einnig traust, og það er einn mikilvægasti grunnur okkar velgengni,“ segir Guðni.

Í viðtalinu ræðir hann jafnframt þróun Reita og þau fjölbreyttu uppbyggingarverkefni sem eru fram undan hjá félaginu.

Lesa má viðtalið í heild hér: Traustur rekstur skapar svigrúm til vaxtar

Fleiri fréttir

Reitir kynna tillögu að nýju skipulagi fyrir Spöngina

Tillagan gerir ráð fyrir þróun á verslunar- og þjónustukjarna sem styrkir Spöngina sem lifandi og öfluga hverfismiðju, uppbyggingu íbúða af ólíkri stærð sem henta íbúum á ólíkum æviskeiðum og grænum almenningssvæðum.

Taktíkin er sigurvegari Torgsins 2026

Átta lið skipuð nemendum úr Háskólanum í Reykjavík tóku þátt í Torginu, árlegri hugmyndasamkeppni Reita og HR, sem haldin var í annað sinn dagana 7. til 10. október. Liðið Taktíkin, skipað þeim Berglindi Hrönn Úlfarsdóttur og Brynhildi Lilju Kristjánsdóttur lögfræðinemum og Matthíasi Jens Ármanni og Eiði Áka Arnarsyni hagfræðinemum, bar sigur úr býtum og tók við verðlaunum í Sólinni laugardaginn 10. október.

Reitir frysta leiguverð allra leigutaka til áramóta

Reitir hafa ákveðið að frysta leiguverð allra leigusamninga tímabundið í þrjá mánuði frá og með október.