Taktíkin er sigurvegari Torgsins 2026
Átta lið skipuð nemendum úr Háskólanum í Reykjavík tóku þátt í Torginu, árlegri hugmyndasamkeppni Reita og HR, sem haldin var í annað sinn dagana 7. til 10. október. Liðið Taktíkin, skipað þeim Berglindi Hrönn Úlfarsdóttur og Brynhildi Lilju Kristjánsdóttur lögfræðinemum og Matthíasi Jens Ármanni og Eiði Áka Arnarsyni hagfræðinemum, bar sigur úr býtum og tók við verðlaunum í Sólinni laugardaginn 10. október.

Sigurvegararnir hljóta í verðlaun skipulagða vettvangsferð til Kaupmannahafnar með fulltrúum Reita og HR. Þar gefst þeim tækifæri til þess að kynnast straumum í fasteignaþróun og nýsköpun í fasteignageiranum. Þau hitta fagfólk í greininni, kynna verkefni sitt fyrir samstarfsaðilum Reita og fá innblástur.
Torgið er samstarfsverkefni Reita og Háskólans í Reykjavík sem byggir á því að færa nemendum raunveruleg verkefni úr starfsemi Reita og skapa vettvang þar sem reynir á nýsköpun, skapandi hugsun og samvinnu nemenda. Samkeppnin undirstrikar jafnframt mikilvægi öflugra tengsla milli háskólasamfélagsins og atvinnulífsins.
Liðið Taktíkin, skipað þeim Berglindi Hrönn Úlfarsdóttur, Brynhildi Lilju Kristjánsdóttur, Matthíasi Jens Ármanni og Eiði Áka Arnarsyni bar sigur úr býtum.
Framtíð skrifstofunnar í brennidepli
Í ár fengu liðin það verkefni að horfa til framtíðar skrifstofuhúsnæðis og greina hvernig þróun atvinnulífs, samfélags og tækni muni hafa áhrif á vinnuumhverfi og skrifstofur til lengri tíma litið. Nemendur unnu að lausnum sem byggðu á raunverulegum áskorunum úr starfsemi Reita og settu fram fjölbreyttar hugmyndir um hvernig mæta megi breyttum þörfum fyrirtækja og starfsfólks á komandi árum.
Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavinasviðs hjá Reitum ávarpar hópinn í lokahófi Torgsins.
„Nemendur sýndu mikinn metnað við að leysa krefjandi verkefni sem lagt var fyrir þau í ár. Það var sönn ánægja að sjá hvernig nemendur nálguðust raunverulegt viðfangsefni úr rekstri Reita og hugmyndir þeirra hafa varpað ljósi á ýmsa áhugaverða anga sem snúa að skrifstofu framtíðarinnar. Það sannaði sig annað árið í röð að Torgið skapar einstakt tækifæri fyrir nemendur til þess að efla sig og tengjast atvinnulífinu og einstaka innsýn fyrir Reiti til framtíðar,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.
Um þrjátíu nemendur tóku þátt í keppninni í ár og komu þeir úr fjölda greina í HR, þar á meðal tölvunarfræði, lögfræði, hagfræði, viðskiptafræði, stjórnun nýsköpunar, mannauðsstjórnun og vinnusálfræði, byggingartæknifræði, tölvunarstærðfræði, auk fjölbreyttra verkfræðifaga: hátækni-, hugbúnaðar-, rekstrar-, fjármála-, véla-, og orkuverkfræði.
Um 30 nemendur úr nær öllum námsgreinum HR tóku þátt í Torginu.
Setningarathöfn í nýjum húsakynnum Travel Connect
Setningarathöfn Torgsins fór fram 7. október í nýjum húsakynnum Travel Connect við Suðurlandsbraut 34. Í samstarfi við Reiti hefur húsnæðið tekið miklum breytingum og verið umbreytt í nútímalegt og glæsilegt vinnuumhverfi með fjölbreyttri aðstöðu fyrir starfsfólk.
Kristjana Milla Snorradóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar segir frá vinnustaðnum Travel Connect og glæsilegu húsnæði félagsins.
Á laugardagsmorgni skiluðu liðin níu inn úrlausnum sínum og kynntu þær í framhaldinu fyrir dómnefnd. Að loknum kynningum stóð liðið Taktíkin uppi sem sigurvegari.
Liðið Fermetri, skipað Sindra Steini Sigurðssyni, Aroni Inga Björnssyni og Jóel Frey Jóhanssyni, hlaut viðurkenningu fyrir frumlegustu hugmyndina og liðið Mangó, skipað Alexander Loga Jónssyni, Fannari, Snævari Haukssyni, Guðbjörgu Gísladóttur, Ingólfi Ísaki Kristinssyni og Helga Hrafni Bergmann, hlaut verðlaun fyrir bestu kynninguna.
Liðið Fermetri, skipað Sindra Steini Sigurðssyni, Aroni Inga Björnssyni og Jóel Frey Jóhanssyni, hlaut viðurkenningu fyrir frumlegustu hugmyndina.
Bestu kynninguna flutti liðið Mangó, skipað Alexander Loga Jónssyni, Fannari, Snævari Haukssyni, Guðbjörgu Gísladóttur, Ingólfi Ísaki Kristinssyni og Helga Hrafni Bergmann.
Öflug tenging við háskólasamfélagið
Dómnefnd Torgsins 2026 var skipuð Guðna Aðalsteinssyni forstjóra Reita, Svönu Huld Linnet framkvæmdastjóri viðskiptavinasviðs Reita, dr. Ólafi Eysteini Sigurjónssyni, aðstoðarrektor rannsókna, nýsköpunar og atvinnulífstengsla við HR, og Valdimar Sigurðssyni, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild HR og höfundi verkefnisins. Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania skipaði heiðurssæti í dómnefndinni í ár en Hildur hefur víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, sér í lagi á sviði tækni og nýsköpunar. Áður en hún tók við keflinu sem forstjóri stærsta upplýsingatæknifyrirtækis landsins starfaði hún í um 16 ár hjá Emblu Medical, áður Össuri, þar á meðal sem framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs.
Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania, sat í dómnefnd Torgsins en hún hefur víðtæka reynslu af stjórnun og nýsköpun.
Torgið var sett á laggirnar í kjölfar þriggja ára samstarfssamnings Reita og HR sem undirritaður var árið 2025. Markmið samstarfsins er að efla nýsköpun, styrkja tengsl atvinnulífs og háskólasamfélags og skapa nemendum einstakt tækifæri til að spreyta sig á raunverulegri áskorun úr starfsemi Reita og efla sig í greiningarvinnu, skapandi hugsun og teymisvinnu.
Þorsteinn Grétar Garðarsson, Brynjar Karl Hákonarsson og Skarphéðinn Davíð Stefánsson skipuðu liðið Fastís.
Guðmundur Ísak Bóasson, Stefán Þorri Magnússon, Birgir Steinn Styrmisson og Gabríel Hörður Rogriguez mynduðu saman liðið Nýja veggi.
Aleksander Klak, Daníel Snær Rodriguez, Freyja Kristín Markúsdóttir og Erpur Þórhallson skipuðu liðið Þetta erpast.
Karitas Líf Ríkharðsdóttir, Rúnar Gauti Gunnarsson og Emilía Nótt Davíðsdóttir voru liðið Funi en þær Karitast og Emilía tóku einnig þátt í Torginu árið 2025 og báru þá sigur úr býtum.


