Til baka

JYSK og Bónus fyrst til að tryggja sér húsnæði í Korputúni

9 september 2024

JYSK hefur gengið frá viljayfirlýsingu við Reiti um kaup á lóðum og Bónus hefur undirritað viljayfirlýsingu um nýtt verslunarhúsnæði í hverfinu. Hverfið verður á stærð við Skeifuna og hefur rúmlega 20% af því verið ráðstafað.

Vegagerð er hafin í nýju atvinnuhverfi sem rísa mun við Vesturlandsveg á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Svæðið tilheyrir Blikastaðalandi í Mosfellsbæ þar sem fyrirhuguð er umfangsmikil uppbygging nýs íbúðahverfis. Reitir fasteignafélag er eigandi þróunarsvæðisins og fer fyrir uppbyggingunni. JYSK hefur undirritað viljayfirlýsingu við Reiti um kaup á lóðum á svæðinu og Bónus hefur undirritað viljayfirlýsingu varðandi nýtt verslunarhúsnæði í hverfinu undir rekstur matvöruverslunar.

Korputún er skipulagt út frá þörfum fólks og náttúrunnar en ekki síður út frá hefðbundnum þáttum, s.s. aðgengi, vöruflutningum og sýnileika. Samgönguás Borgarlínu mun liggja í gegnum skipulagssvæðið með Borgarlínustöð við verslunarkjarna svæðisins.

Verslunarkjarni verður á svæðinu

Forsvarsmenn Bónus hafa lýst yfir vilja til þess að verslun félagsins verði þar kjölfesta til framtíðar. Í verslunarkjarnanum verða jafnframt til leigu veitingarými og húsnæði fyrir aðra hverfisverslun og þjónustu.

Þá hefur lagerinn Iceland sem er móðurfélag JYSK á Íslandi undirritað viljayfirlýsing við Reiti um kaup á lóðum þar sem gert er ráð fyrir ríflega 17 þúsund fermetra byggingarmagni. Á lóðunum hyggst félagið byggja nýjar höfuðstöðvar ásamt vöruhúsi og verslun fyrir JYSK. Jafnframt er gert ráð fyrir plássi fyrir aðrar verslanir á lóðinni auk skrifstofu- og þjónusturýmis.  

Reiknað er með að í hverfinu verði bæði tilbúið og klæðskerasniðið leiguhúsnæði í boði ásamt möguleika á að kaupa lóðir til uppbyggingar.

Allar nánari upplýsingar má finna á www.korputun.is.

„Höfuðborgarsvæðið er í mikilli þróun, ekki síst í norður- og austurhluta þar sem m.a. mun rísa byggð í Blikastaðalandinu og svo Keldnaholti þegar fram líða stundir. Þetta mun auka enn frekar þörf  fyrir verslun og þjónustu á svæðinu. Korputún leikur mikilvægt hlutverk í þessari uppbyggingu með blómlegu atvinnulífi í nýju og vönduðu hverfi enda verður nýja atvinnuhverfið gífurlega vel staðsett og býður mikil tækifæri fyrir ólíka aðila.

Á sama tíma erum við mjög stolt af því að Korputún verði fyrsta atvinnuhverfið á landsvísu sem er skipulagt samkvæmt kröfum BREEAM Communities vistvottunarstaðalsins. Við skipulag hverfisins var lögð mikil áhersla á að lágmarka rask á vatnsmagni sem rennur í Korpu og unnin var vönduð viststefna fyrir hverfið. Neðst í landinu, nálægt Korpu, er fallegt svæði með miklu dýralífi sem mikilvægt er að vernda,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.

 

,,Við hjá JYSK erum stöðugt að leita tækifæra til að auka þjónustu við viðskiptavini okkar. Að vera nær viðskiptavinum er hluti af okkar stefnu og uppbygging JYSK í Korputúni gerir okkur kleift að þjóna íbúum Mosfellsbæjar, Norðlingaholts og Grafarholts mun betur en áður. Íbúafjöldi á þessum svæðum hefur vaxið mikið á síðustu árum og með tilkomu uppbyggingar á Blikastaðalandi er fyrirséð frekari fjölgun íbúa. Korputún hefur allt til að bera til að verða frábært verslana- og þjónustusvæði og mun styðja við áframhaldandi vöxt JYSK.“ - Björn Ingi Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri JYSK.

 

„Blikastaðaland er eitt af framtíðarbyggingarsvæðum höfuðborgarsvæðisins og sjáum við áhugaverð tækifæri í opnun verslunar þar undir nafni Bónus. Þannig hyggjumst við þjóna íbúum með góðu úrvali matvöru á lægsta mögulega vöruverði, hér eftir sem hingað til.“ -Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus.”

 

„Ég fagna því að við séum að hefja uppbyggingu á þessu nýja atvinnusvæði í Mosfellsbæ. Það styrkir samfélagið hér að fá ný fyrirtæki á svæðið, bæði hvað varðar þjónustu við íbúa en ekki síst að fjölga atvinnutækifærum. Við eigum í mjög góðu samstarfi við Reiti um þróun atvinnusvæðisins og höfum væntingar um að fá hingað öflug og fjölbreytt fyrirtæki. Það er mikið fagnaðarefni að nú þegar hafi tvö öflug fyrirtæki tryggt sér húsnæði á svæðinu, JYSK og ný verslun Bónus í Korputúni sem verður þjónustubót fyrir íbúa Mosfellsbæjar. " - Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. 

 

Ljósmynd/Rakel Rún
Frá vinstri: Björn Ingi Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri JYSK á Íslandi, Þórarinn Ólafsson, framkvæmdastóri Lagerinn Iceland, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Birgir Þór Birgisson framkvæmdastjóri þróunar hjá Reitum og Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus

Fleiri fréttir

Reitir áfram framúrskarandi og til fyrirmyndar

Reitir eru í þriðja sæti yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 og hljóta viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki ellefta árið í röð.

Reitir kynna tillögu að nýju skipulagi fyrir Spöngina

Tillagan gerir ráð fyrir þróun á verslunar- og þjónustukjarna sem styrkir Spöngina sem lifandi og öfluga hverfismiðju, uppbyggingu íbúða af ólíkri stærð sem henta íbúum á ólíkum æviskeiðum og grænum almenningssvæðum.

Taktíkin er sigurvegari Torgsins 2026

Átta lið skipuð nemendum úr Háskólanum í Reykjavík tóku þátt í Torginu, árlegri hugmyndasamkeppni Reita og HR, sem haldin var í annað sinn dagana 7. til 10. október. Liðið Taktíkin, skipað þeim Berglindi Hrönn Úlfarsdóttur og Brynhildi Lilju Kristjánsdóttur lögfræðinemum og Matthíasi Jens Ármanni og Eiði Áka Arnarsyni hagfræðinemum, bar sigur úr býtum og tók við verðlaunum í Sólinni laugardaginn 10. október.