Reitir semja við Þúsund fjalir um neyðarþjónustu
Reitir hafa gert samning við Þúsund fjalir um viðbrögð við neyðartilfellum og aðkallandi viðhaldi í fasteignum Reita. Neyðarþjónustan felur í sér skjót viðbrögð við óvæntum tjónum og aðkallandi viðhaldsþörf í húsnæði Reita.

Frá vinstri: Guðni Aðalsteinsson, Björgvin Sigmar Stefánsson, Halldór Knudsen, Jón Kolbeinn Guðjónsson og Ómar Snævar Friðriksson
Þúsund fjalir hafa starfað frá árinu 1999 og búa yfir víðtækri reynslu af viðhaldi og viðgerðum fasteigna. Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur fagfólks sem sinnir verkefnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Leigutakar hafa áfram aðgang að neyðarþjónustu allan sólarhringinn í síma 575 9000. Utan opnunartíma Reita er símtölum beint til Þúsund fjala.


