Reitir reisa leikskóla í samstarfi við Hýsi
Reitir og Hýsi-Verkheimar hefja samstarf um framleiðslu og uppbyggingu á skólabyggingum fyrir sveitarfélög og aðra aðila. Lausnin felur í sér færanlega skóla hannaða með stöðluðum húsaeiningum sem henta einkar vel fyrir starfsemi leikskóla. Með samstarfinu mæta Reitir og Hýsi vaxandi þörf víða á landinu fyrir húsnæði undir skólastarf.

Fullbúinn leikskóli á allt að 6 mánuðum
Í samstarfi munu Reitir og Hýsi bjóða sveitarfélögum, hinu opinbera og öðrum aðilum upp á hagkvæmar skólabyggingar sem útfærðar eru með stöðluðum húsaeiningum og hægt verður að leigja til skemmri eða lengri tíma. Frumhönnun að fimm deilda leikskóla fyrir 90 börn sem hægt er að afhenda á 6 mánuðum liggur fyrir. Auðvelt er að stækka hönnunina í leikskóla með sjö deildum sem rúmar 120 börn. Auk þess er í boði að hanna og útfæra leikskóla eftir þörfum, kröfum og ólíkum lóðum. Fjöldi möguleika býðst við val á klæðningu, þakformi, upphitun og innra skipulagi.
„Við erum stolt af því að nýta okkar þekkingu og reynslu af rekstri atvinnufasteigna í uppbyggingu leikskóla sem mikil þörf er á. Lausnin sem við bjóðum í samstarfi við Hýsi er í senn skilvirk, hagkvæm og sveigjanleg. Frá frumteikningu að fullbúnum leikskóla getur ferlið tekið 6 mánuði,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.
Einingarnar eru færanlegar og því hægt að flytja heilan skóla á milli staða eftir því sem þarfir þróast. Nú þegar hefur reynt á flutning skólaeininga milli staða innan bæjarfélags hér á landi með góðum árangri.
Góð reynsla af skólabyggingum
Reitir munu annast útleigu og rekstur leikskólabygginganna en félagið er leiðandi afl í atvinnuhúsnæði og á og rekur nú þegar 150 fasteignir, eða 490.000 fermetra. Félagið býr að áratuga langri reynslu og viðamikilli þekkingu á rekstri, viðhaldi og öllu því sem við kemur atvinnufasteignum.
Hýsi-Verkheimar er íslenskt fyrirtæki sem hefur að baki sér 15 ára reynslu í uppbyggingu skóla- og atvinnuhúsnæðis. Hýsi mun annast samskipti við framleiðanda eininga og uppsetningu þeirra hérlendis í samstarfi við Reiti en fyrirtækið hefur nú þegar reist þrjá grunnskóla og þrjá leikskóla úr stöðluðum húseiningum á Íslandi, samtals um 4.500 fm. Tíu ár eru liðin frá því að fyrsta skólabyggingin var reist og er reynslan af rekstri, viðhaldi og flutningi afar góð.
Mikil þörf á uppbyggingu leikskólahúsnæðis
Mikil þörf er á uppbyggingu leikskólahúsnæðis víða um land en þar að baki liggja ýmsar ástæður og má nefna fjölgun barna í sumum sveitarfélögum, skort á húsnæði og uppsafnaða framkvæmda- og viðhaldsþörf.
Samkvæmt könnun Sambands íslenskra sveitarfélaga frá árinu 2022 fengu 65% barna innritun í leikskóla við 18 mánaða aldur eða seinna. Eingöngu 8% barna voru innrituð í leikskóla við 12 mánaða aldur þegar fæðingarorlofi lýkur alla jafna en 9% barna hlutu innritun í leikskóla eftir 30 mánaða aldur.
Samkvæmt skýrslu Samtaka iðnaðarins er innviðaskuld í fasteignum í eigu sveitarfélaga metin á 95 ma. kr. og endurstofnsverð þeirra metið á 1.050 ma. kr. en skólar og leikskólar eru 33% af því fasteignasafni.
Þróun sem mætir brýnni eftirspurn
Reitir fara með aukin umsvif í þróun fasteigna með sérstaka áherslu á uppbyggingu sem mætir þörfum samfélagsins. Uppbygging leikskóla fyrir sveitarfélög og aðra aðila er liður í þeirri stefnu. Félagið er nú þegar með yfir 1.000 íbúðir á teikniborðinu og 130.000 fermetra af atvinnuhúsnæði, þar á meðal hjúkrunarheimili og fyrsta sjálfbærnivottaða atvinnukjarnann á Íslandi.


