Reitir og Hjallastefnan í samstarf um leik- og grunnskóla í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg
Reitir og Hjallastefnan hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um þróun og uppbyggingu á nýjum leik- og grunnskóla í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg sem rís á vegum Reita. Hjallastefnan mun flytja skólastarf sitt í Reykjavík fyrir um 400 börn á leikskólaaldri og í 1.-7. bekk grunnskóla í umhverfisvæna leik- og grunnskólabyggingu í lífsgæðakjarnanum.
Samstarfið við Reiti um byggingu leik- og grunnskóla fyrir starfsemi Hjallastefnunnar mun binda endi á nærri tuttugu ára sögu um húsnæðisvanda leikskólans Öskju og Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík. Allt frá árinu 2006, þegar fyrstu börnin hófu nám í grunnskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík, hefur ríkt óvissa um húsnæði. Lengst af störfuðu skólarnir við Nauthólsveg 89 eða frá árinu 2010. Þegar skóla var slitið vorið 2022 var ljóst að Háskólinn í Reykjavík, sem lánað hafði lóð undir húsnæði skólanna, gæti ekki lengur beðið með að hefja uppbyggingu á lóðinni og skólahús Hjallastefnunnar þurftu að víkja. Skólastarf hefur frá þeim tíma verið í skammtíma leiguhúsnæði við Skógarhlíð 6. Um tíma var starfsemi á miðstigi við Háuhlíð í húsnæði skátafélagsins Landnema en í dag starfa nemendur á miðstigi í Arnarhlíð 1.
Samstarfið er lykilstef í að tryggja gott húsnæði undir skólastarf Hjallastefnunnar til framtíðar. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur sýnt verkefninu mikinn áhuga og veitt góðan stuðning en án stuðnings borgarinnar við starfsemi og uppbyggingu sjálfstæðra skóla værum við ekki hægt að fagna þessum áfanga.
Hjallastefnan er framsækið félag á sviði uppeldis- og menntunar sem starfrækir sjálfstæða leik- og grunnskóla undir merkjum jafnréttis, lýðræðis og sköpunar. Í dag er félagið með samninga við tíu sveitarfélög um rekstur 12 leikskóla og þriggja grunnskóla með um 1.650 börnum og starfsfólki sem telur um 550. Tveir leikskólar í Reykjanesbæ og einn í Reykjavík starfa einnig undir merkjum Hjallastefnunnar í eigin rekstri skólastjórnenda. Nýr leik- og grunnskóli fyrir um 400 börn mun þjóna stórum hópi nemenda og starfsfólks Hjallastefnunnar.
Hjallastefnan er í sínum innsta kjarna kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna með mennsku og náttúru að leiðarljósi sem fellur fullkomlega að fyrirhugaðri þróun og uppbyggingu á lífsgæðakjarna.
„Það má með sanni segja að samstarf Hjallastefnunnar við Reiti hafi reynst bæði uppbyggilegt og ánægjulegt og fært verkefninu um að finna framtíðarhúsnæði nýjan kraft. Verkefnið hefur reynst starfsfólki, foreldrum og börnum langdregið og krefjandi, en aðkoma Reita gefur tilefni til bjartsýni. Ýmsar leiðir hafa verið kannaðar til að finna skólunum framtíðarhúsnæði án þess að árangur hafi náðst til þessa. Nú ríkir gleði og eftirvænting innan Hjallastefnunnar,“ segir Alma Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Hjallastefnunnar.
Ný nálgun í hönnun og skipulagi í lífsgæðakjarnanum
Reitir kynntu áform um nýjan lífsgæðakjarna sem mun rísa við Nauthólsveg þar sem fyrirhuguð er uppbygging á um 150 íbúðum, einkum fyrir íbúa 60 ára og eldri, leik- og grunnskóla, verslun og þjónustu, hjúkrunarheimili og sameiginlegum rýmum.
Margrét Pála, stofnandi Hjallastefnunnar ávarpaði hópinn ásamt Hildi Björnsdóttur, borgarstjóra Reykjavíkur og Guðna Aðalsteinssyni, forstjóra Reita.
Kjarninn er innblásinn af hugmyndafræði frá Hollandi um þveraldursbúsetu sem rannsóknir hafa sýnt fram á að stuðli að vellíðan og félagsvirkni íbúa. Garðar, torg, yfirbyggð útirými, samgöngur og samnýting svæða skapa samhljóm innan nærsamfélagsins, draga úr félagslegri einangrun og bæta lífsgæði íbúa. Blönduð byggð af þessum toga gerir fjölbreyttum hópi íbúa kleift að samnýta rými og þjónustu og glæðir kjarnann lífi.
„Það er okkur sönn ánægja að hefja samstarf við Hjallastefnuna sem er framsækinn frumkvöðull í rekstri og þróun skólasamfélags á Íslandi. Stefna Hjallastefnunnar er einstaklega vel fallin að hugmyndafræði lífsgæðakjarnans þar sem íbúum á ólíkum aldri er gert jafn hátt undir höfði og samnýting rýma tengir saman kynslóðir og styrkir samfélagið,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.
Umhverfisvæn hönnun í anda Hjallastefnunnar
Leik- og grunnskóli á vegum Hjallastefnunnar fellur einkar vel að hönnunar- og skipulagsáherslum kjarnans. Börn í Hjallastefnuskólum eru alls staðar virkir þátttakendur í nærsamfélaginu við bæði fólk og náttúru sem er eitt af mörgu sem skapar sérstöðu skólanna.
Fyrirhuguðu hönnun lífsgæðakjarnans við Nauthólsveg sem brýtur blað í skipulagi á Íslandi.
Leik- og grunnskólinn verður í samtengdri byggingu og stefnt er að því að útfæra hönnun með forsmíðuðum húseiningum. Rík áhersla verður lögð á að lágmarka kolefnisspor við hvert skref, frá hönnun að fullbúnum skóla, og unnið verður með umhverfisvæn og náttúruleg efni í anda Hjallastefnunnar.
Vinna við gerð deiliskipulags stendur yfir og stefnt er að því að klára það ferli fyrri hluta árs 2027 með það markmið að framkvæmdir geti hafist um mitt ár 2027.
Uppbyggingarsamningur milli Reita og Reykjavíkurborgar um lífsgæðakjarnann ásamt tveimur öðrum uppbyggingarverkefnum var undirritaður í desember 2025.


