Reitir kynna tillögu að nýju skipulagi fyrir Spöngina
Reitir kynntu nýlega vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Spöngina fyrir umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Tillagan gerir ráð fyrir þróun á verslunar- og þjónustukjarna sem styrkir Spöngina sem lifandi og öfluga hverfismiðju, auk uppbyggingar íbúða af fjölbreyttri stærð. Græn almenningssvæði sem tengja saman íbúðir og atvinnukjarna í eina heild verða útfærð og tengingar ólíkra samgöngumáta við Grafarvog verða styrktar.

- Nútímavæðing Spangarinnar með nýjum rýmum undir enn meira úrval verslana og þjónustu auk stærri og betrumbættum rýmum undir matvöruverslun
- Næg bílastæði fyrir gesti verslana og íbúa, bæði ofanjarðar og í bílakjallara
- Nýjar íbúðir í Grafarvogi af ólíkri stærð sem mæta eftirspurn íbúa, sér í lagi eldri borgara og þeirra sem vilja minnka við sig innan Grafarvogs
- Örugg og notaleg upplifun gesta og íbúa með fjölbreyttum, gróðursælum almenningsrýmum og góðum samgöngutengingum
- Tillagan tekur meðal annars mið af niðurstöðum úr könnun Reita
Reitir hafa mótað framtíðarsýn fyrir Spöngina sem lifandi hverfismiðju Grafarvogs sem byggir á þeim öfluga kjarna sem þegar er að finna þar í dag. Í samstarfi við dönsku arkitektastofuna Henning Larsen hafa Reitir gert tillögu að nýju deiliskipulagi þar sem litrík íbúðabyggð í Spönginni flæðir saman við fjölskylduvænan hverfiskjarna með fjölbreyttu úrvali verslana, þjónustu og almenningsrýma í gróðursælu nærumhverfi.
Samráðsferli við hagaðila
Verði tillaga Reita samþykkt af umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar tekur við samráðsferli þar sem hagaðilar geta gert athugasemdir við skipulagið, þar á meðal íbúar og rekstraraðilar í Spönginni. Auk þess verður haldin íbúakynning samhliða auglýsingu á skipulaginu og á þeim vettvangi geta íbúar og aðrir hagaðilar einnig komið skoðunum sínum á framfæri.
Reitir hafa lagt áherslu á að nýtt deiliskipulag styrki Spöngina sem eftirsóknarverðan samkomustað fyrir íbúa Grafarvogs og mæti þörfum þeirra um framboð húsnæðis og úrval verslunar og þjónustu í sínu nærumhverfi. Við gerð tillögunnar framkvæmdu Reitir könnun meðal íbúa Grafarvogs og endurspeglar tillagan mikið af þeim þáttum sem íbúar Grafarvogs óska sér og telja mikilvæga.
Niðurstöður könnunarinnar leiddu meðal annars í ljós að 66% íbúa telja það jákvætt ef byggt væri við Spöngina svo koma megi fyrir fleiri verslunum og meiri þjónustu, og 60% íbúa finnst mikilvægt að bæta almenningsrými í Spönginni. Könnunin varpaði einnig ljósi á jákvætt viðhorf gagnvart íbúðaruppbyggingu en 81% íbúa Grafarvogs segjast hugsa sér að búa í Grafarvogi á efri árum og 73% íbúa 60 ára og eldri voru jákvæð fyrir uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk í Spönginni.
Fjölbreytt verslun og þjónusta í öflugri hverfismiðju
Spöngin gegnir mikilvægu hlutverki í Grafarvogi en könnun Reita sýnir að yfir 92% íbúa Grafarvogs gerir sér ferð í Spöngina vikulega eða oftar og mikill meirihluti er ánægður með þær verslanir sem eru til staðar. Á sama tíma gefur könnunin í skyn að íbúar hafi áhuga á enn meira úrvali verslana og þjónustu í sínu nærumhverfi.
Tillaga Reita gerir ráð fyrir að stærstur hluti þeirra atvinnurýma sem þegar eru til staðar muni standa áfram og matvöruverslanir verði stækkaðar og betrumbættar. Auk þess verða ný rými reist undir enn fjölbreyttari verslun og þjónustu. Til að mynda gerir tillagan ráð fyrir nýjum rýmum til móts við bókasafnið sem gætu hentað veitingastöðum, kaffihúsi og svipaðri þjónustu. Tillagan felur í sér nútímavæðingu verslunarkjarnans þar sem framhliðar verslana verða endurgerðar í sama stíl og ný byggð í Spönginni.
Markmiðið er að tryggja áfram þá þjónustu og verslun sem þegar er til staðar og bæta hana enn frekar með fjölbreyttara úrvali. Auk þess gerir tillaga Reita ráð fyrir því að nýta þær byggingar sem fyrir eru og lágmarka niðurrif með umhverfissjónarmið í huga.
Íbúðir fyrir unga sem aldna
Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir uppbyggingu nýrra íbúða sem verða ólíkar í gerð og stærð með það í huga að höfða til fólks með ólíkar þarfir á öllum stigum lífsins. Yfir 53% íbúa 60 ára og eldri sjá fyrir sér að minnka við sig í húsnæði innan Grafarvogs á næstu árum. Áhersla verður lögð á íbúðir sem henta til dæmis fyrstu kaupendum, minni fjölskyldum og eldri borgurum. Ný íbúabyggð mun þannig auka framboð íbúðarhúsnæðis í Grafarvogi sem hentar fólki með ólíkar þarfir á ólíkum æviskeiðum.
Hóflegt nýtingarhlutfall
Reitir hafa lagt metnað í að umfang uppbyggingar sé í samræmi við nálægða byggð í Grafarvogi. Miðað við stærð lóðar og deiliskipulagstillöguna myndi nýtingarhlutfall Spangarinnar í breyttri mynd verða undir 1,0 sem er sambærilegt við nærliggjandi byggð, svo sem Bjarg, Rimana og íbúðarkjarna Eirar. Nýtingarhlutfallið er talsvert lægra en sést hefur í mörgum af þéttingarverkefnum í borginni.
Áhersla á uppbrot og liti í hönnun
Við hönnun íbúða verður lögð áhersla á uppbrot húskroppa sem mynda aðlaðandi götumynd í takt við nærliggjandi byggð og opnanir milli húsanna bjóða upp á útsýni til fjalla í allar áttir. Hönnunin gerir ráð fyrir inndregnum efstu hæðum á sumum húsanna og ólíkum litum og byggingarefni sem gefa jarðhæðum og efstu hæðum sérstaka áherslu. Innblástur hönnunarinnar er fenginn frá litríkum þökum víða í Grafarvogi og annars staðar í Reykjavík og lagt er upp með að byggingarnar séu viðeigandi bakgrunnur gróðursins og forgrunnur fjalla.
Almenningsrými, gróður og góðar tengingar í hjarta Grafarvogs
Um 60% íbúa telja mikilvægt að bæta almenningsrými í Spönginni, til dæmis með setusvæðum og bekkjum, grænum svæðum og görðum. Tillaga Reita tekur mið af þessu sjónarmiði og ný almenningssvæði sem bjóða íbúum og gestum að dvelja og njóta utandyra verða útfærð á nokkrum stöðum í Spönginni. Áhersla verður lögð á fjölbreytta tegund almenningsrýma, meðal annars bekki og setrými, leiksvæði fyrir börn og gróðursæl útisetusvæði.
Almenningssvæði og bílastæði verða gróðursælli en áður og aukin áhersla á bætt umhverfi utandyra í Spöng. Ólíkum samgöngumátum verður gert hátt undir höfði með áherslu á góða upplifun og öryggi íbúa, gesta og íbúa á öllum aldri. Stígar munu tengja svæði innan og utan Spangarinnar saman sem auðveldar aðgengi bæði gangandi og hjólandi vegfarenda. Þá er fyrirhugað að almenningssamgöngur muni tengjast svæðinu enn betur á komandi árum.
Bílastæði fyrir gesti og íbúa
Bílastæði verða áfram til staðar ofanjarðar fyrir þau sem sækja verslun og þjónustu á svæðinu en auk þess gerir tillaga Reita ráð fyrir bílakjallara þar sem miðað er við að eitt bílastæði verði í boði fyrir hverja íbúð. Mæling á nýtingu bílastæða við Spöngina í dag sýnir að nýtingin er talsvert undir meðallagi og hér gefst því gott tækifæri til að endurskipuleggja bílastæði svæðisins án þess að skerða aðgengi íbúa og gesta að Spönginni. Endurbætt bílastæði verða útfærð að hluta til með gegndræpu yfirborði og auknum gróðri sem undirstrikar enn frekar bætta upplifun gesta í Spönginni.


