Til baka

Reitir fjárfesta í hóteli við Hlíðasmára í Kópavogi

24 mars 2025

Reitir og IS FAST-3 hafa undirritað samkomulag um kaup Reita á félaginu L1100 ehf., sem á tæplega 3.900 fm. hótel við Hlíðasmára 5-7 í Kópavogi. Samhliða kaupunum verður gerður leigusamningur til langs tíma um rekstur hótelsins við Flóra hotels sem rekur einnig Reykjavík Residence, Tower Suites og tvö hótel undir merkjum Oddsson.

Heildarvirði er 1.990 m.kr. og eru kaupin að fullu fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Leigutekjur á ársgrunni eru um 200 m.kr. Kaupin leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 175 m.kr. á ársgrundvelli.

Áætlað er að afhending eignarinnar eigi sér stað eigi síðar en 1. maí nk. Afhending mun fara fram þegar fyrirvörum um viðskiptin hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður hefðbundinna áreiðanleikakannana.

Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 og á gudni@reitir.is og Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga og greininga í síma 659 1700 og á kristofer@reitir.is.

Fleiri fréttir

Reitir skila 8,5 tonnum af teppaflísum í hringrásarverkefni

Reitir eru fyrsta fyrirtækið á Íslandi til þess að taka þátt í ReStart, umfangsmiklu hringrásarverkefni á vegum Tarkett í samstarfi við Gólfefnaval.

Uppbygging við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit

Reitir fasteignafélag hafa gert uppbyggingarsamkomulag við Reykjavíkurborg um þróun og uppbyggingu á fjölbreyttu íbúðar- og atvinnuhúsnæði við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit.

Reitir eru framúrskarandi og til fyrirmyndar

Reitir eru í 3. sæti meðal 1.720 fyrirtækja sem eru til fyrirmyndar samkvæmt samantekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar.