Til baka

Ársskýrsla og samfélagsskýrsla Reita 2019

16 febrúar 2020

Reitir hafa gefið út ársskýrslu og samfélagsskýrslu fyrir árið 2019.

Ársskýrsla og samfélagsskýrsla Reita 2019

Samhliða ársskýrslu er gefin út samfélagsskýrsla og eignasafnsskýrsla. 

Samhliða ársskýrslu gefa Reitir út samfélagsskýrslu sem tekur á umhverfismálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum hjá félaginu. Skýrslan tekur mið af leiðbeiningum Nasdaq um birtingu upplýsinga um samfélagsábyrgð, eða svokölluðum ESG (e. environmental, social, governance) þáttum. Á komandi árum hyggjast Reitir leggja aukna áherslu á mælingu þessara þátta, setningu markmiða og eftirfylgni með þeim í starfsemi sinni.

Eignasafnsskýrslan fjallar um um fasteignir, leigusamninga og leigutekjur. Í skýrslunni má finna upplýsingar um flokkun leigutekna út út frá landfæðilegri dreifingu, og út frá tegundum og stærð leigutaka. Virði fasteigna er skoðað út frá staðsetningu og tegund. Veitt er yfirlit yfir allar eignir félgsins með upplýsingum um aldur, stærð og fasteignamat.

Fleiri fréttir

Viðhorfskönnun Reita stendur yfir

Þjónustukönnun Reita stendur yfir þessa dagana. Könnun er framkvæmd af Prósent og við hvetjum alla viðskiptavini til þess að taka þátt.

Ársskýrsla 2025 er komin út

Í skýrslunni má finna góða og yfirgripsmikla umfjöllum um starfsemi Reita, metnaðarfulla vaxtarstefnu félagsins, verkefni og áfanga á árinu, sjálfbærni og hvert við stefnum til framtíðar.

Reitir skila 8,5 tonnum af teppaflísum í hringrásarverkefni

Reitir eru fyrsta fyrirtækið á Íslandi til þess að taka þátt í ReStart, umfangsmiklu hringrásarverkefni á vegum Tarkett í samstarfi við Gólfefnaval.