Til baka

Ársskýrsla 2025 er komin út

25 mars 2026

Í skýrslunni má lesa greinagóða umfjöllun um starfsemi Reita, stórt og vel dreift eignasafn og fjölbreyttan hóp leigutaka. Þá er einnig gerð grein fyrir metnaðarfullri vaxtarstefnu félagsins, fjárfestingum í vexti og markmiðum til næstu ára. Helstu verkefnum ársins, framgangi þeirra og áföngum eru gerð góð skil en þess má geta að Reitir fögnuðu 10 ára skráningarafmæli í Kauphöll Íslands á árinu.

Greint er frá þróunarverkefnum félagsins og áherslu á uppbyggingu fjölbreyttra fasteigna á borð við íbúðir, hjúkrunarheimili, leikskóla og grunnskóla, auk atvinnuhúsnæðis sem styður við öflugt atvinnulíf.

Einnig er fjallað um sjálfbærni í rekstri og hvernig félagið hyggst halda áfram að skapa verðmæti til framtíðar.

Ársskýrsluna má lesa hér:
www.reitir.is/arsskyrsla2025

Fleiri fréttir

Reitir kynna tillögu að nýju skipulagi fyrir Spöngina

Tillagan gerir ráð fyrir þróun á verslunar- og þjónustukjarna sem styrkir Spöngina sem lifandi og öfluga hverfismiðju, uppbyggingu íbúða af ólíkri stærð sem henta íbúum á ólíkum æviskeiðum og grænum almenningssvæðum.

Taktíkin er sigurvegari Torgsins 2026

Átta lið skipuð nemendum úr Háskólanum í Reykjavík tóku þátt í Torginu, árlegri hugmyndasamkeppni Reita og HR, sem haldin var í annað sinn dagana 7. til 10. október. Liðið Taktíkin, skipað þeim Berglindi Hrönn Úlfarsdóttur og Brynhildi Lilju Kristjánsdóttur lögfræðinemum og Matthíasi Jens Ármanni og Eiði Áka Arnarsyni hagfræðinemum, bar sigur úr býtum og tók við verðlaunum í Sólinni laugardaginn 10. október.

Reitir frysta leiguverð allra leigutaka til áramóta

Reitir hafa ákveðið að frysta leiguverð allra leigusamninga tímabundið í þrjá mánuði frá og með október.