Reitir frysta leiguverð allra leigutaka til áramóta
Reitir hafa ákveðið að frysta leiguverð allra leigusamninga tímabundið í þrjá mánuði frá og með október.

Reitir þjónusta breiðan og fjölbreyttan hóp um 500 fyrirtækja og stofnana sem starfa þvert á íslenskt atvinnulíf, þar á meðal í smásölu- og dagvöruverslun, ásamt öðrum geirum á borð við iðnað, þjónustu- og þekkingarfyrirtæki og hótel. Fjölmargir rekstraraðilar í Kringlunni eru einnig meðal leigutaka félagsins og þangað sækir fjöldi fólks ýmsa verslun og þjónustu á degi hverjum.
Markmið félagsins með þessari aðgerð er að styðja við leigutaka sína og gera þeim kleift að stuðla að lækkun verðlags og þar með auka stöðugleika í efnahagslífinu.
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita:
„Snertiflötur Reita við íslenskt hagkerfi er mikill þar sem leigutakar félagsins starfa þvert á atvinnugreinar og ná þannig til þorra þjóðarinnar. Með því að frysta leiguverð viljum við stuðla að því að halda niðri verðlagi auk þess að koma til móts við leigutaka sem hafa þegar stigið fram með áþekkum aðgerðum. Reitir leggja með frystingu leiguverðs sitt framlag á vogarskálarnar í baráttunni við verðbólguna.“
Viðskiptavinir geta beint fyrirspurnum varðandi málið til viðskiptastjóra eða á netfangið reitir@reitir.is.

