Hlutafjárútboð
Forgangsréttar- og almennt útboð í Reitum 20. og 21. október 2020. Hér má finna öll gögn og upplýsingar tengd útboðinu.
Forgangsréttar- og almennt útboð í Reitum 20. og 21. október 2020. Hér má finna öll gögn og upplýsingar tengd útboðinu.
Niðurstaða hlutafjárútboðs:
Þann 21. október lauk hlutafjárútboði á alls 120.000.000 nýjum hlutum í Reitum fasteignafélagi hf. en hlutirnir voru boðnir fjárfestum til áskriftar á genginu 43 kr. á hvern hlut. Útboðið hófst klukkan 10 í gær 20. október og lauk í dag kl. 16. Lýsing vegna útboðsins var birt þann 9. október 2020. Arctica Finance hf. var umsjónaraðili útboðsins en Íslandsbanki var félaginu einnig til ráðgjafar.
Í útboðinu bárust áskriftir fjárfesta fyrir alls 11.813.039.464 kr. eða 274.721.849 nýjum hlutum. Í forgangsréttarhluta útboðsins bárust áskriftir fyrir samtals 10.059.157.657 kr. eða 233.933.899 hlutum og í almennum hluta útboðsins bárust áskriftir fyrir samtals 1.753.881.807 kr. eða 40.787.949 nýjum hlutum. Niðurstaðan er því rúmlega tvöföld eftirspurn eftir nýjum hlutum í útboðinu.
Í samræmi við reglur útboðsins var alls 120.000.000 nýjum hlutum úthlutað til forgangsréttarhafa en þar er um að ræða áskrift að öllum þeim nýju hlutum sem boðnir voru í útboðinu. Samkvæmt því kemur ekki til úthlutunar nýrra hluta til þeirra fjárfesta sem skráðu áskrift í almennum hluta útboðsins.
Gert er ráð fyrir að fjárfestar geti nálgast upplýsingar um sína úthlutun fyrir lok dags 22. október með því að skrá sig inn á vef Arctica Finance: https://www.arctica.is/reitir-utbod/ með sömu auðkennum og notuð voru til áskriftarinnar. Gjalddagi áskriftarloforða fjárfesta er 28. október næstkomandi og fer afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fram að lokinni skráningu hækkunar hlutafjár hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins, áætlað eigi síðar en þann 13. nóvember nk. Gert er ráð fyrir að viðskipti með hina nýju hluti hefjist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. eigi síðar en þann 16. nóvember næstkomandi.
Um útboðið
Hlutafjárhækkunin mun fara fram á grundvelli almenns hlutafjárútboðs til að safna áskriftum að hinum nýju hlutum þar sem hluthafar Reita njóta forgangs að hinum nýju hlutum, en að forgangsrétti frágengnum verða hinir nýju hlutir boðnir almennum fjárfestum í almennu útboði sem fram fer samhliða forgangsréttarútboðinu.
Nánari upplýsingar:
Arctica Finance er umsjónaraðili útboðsins. Nánari upplýsingar í síma 513-3300 og á reitir@arctica.is.
Skráning á opinn rafrænan kynningarfund um útboðið þann 16. október 2020
Tilkynning um útboð sem haldið verður 20. og 21. október 2020
Lýsing vegna útboðs 9. október 2020
Fjárfestakynning vegna útboðs 9. október 2020
Fjárhagsupplýsingar á vef Reita
Starfsreglur og stjórnarhættir á vef Reita
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.
Reitir fasteignafélag hf.
Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Kt. 711208-0700
Sími +354 575 9000
Almennt: reitir(hjá)reitir.is
Reikningar: bokhald(hjá)reitir.is