Kringlan fyrsta verslunarmiðstöð heims með rafræn gjafakort fyrir allar verslanir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tók formlega við fyrsta gjafakorti Kringlunnar í dag og verslaði með því í snyrtivörudeild Hagkaupa.

Helsti kostur kerfisins er að hægt er að selja og gefa út gjafakortin rafrænt að fullu án þess að viðskiptavinir þurfi að bæta við nýju appi í símann sinn þar sem gjafakortin fara beint í Apple eða Google Wallet. Kerfið er mun umhverfisvænna þar sem það dregur úr útgáfu plastkorta og umbúða sem áður einkenndu gjafakort. Eins opnar þetta á ný markaðstækifæri fyrir Kringluna til að koma skilaboðum til korthafa um t.d. lengri opnunartíma, viðburði í Kringlunni og áminningar um að nota kortið þegar styttist í að gildistími kortsins ljúki.
Rafrænu gjafakortin hafi marga kosti bæði fyrir korthafa sem og Kringluna en nú geti korthafar fylgst með inneign á gjafakorti í símanum. Eins haldi kerfið utan um uppgjör við verslanir og gefi Kringlunni raunstöðu um ónotuð kort og innlausn, sem gefi góða yfirsýn.
Fjártæknilausnin er frá nýsköpunarfyrirtækinu Leikbreyti og kallast Gift-to-wallet. Lausnin gerir viðskiptavinum kleift að vera með gjafkortið í símaveskinu og sjá þar raunstöðu og fá áminningar um að nota kortið, sem minnki hættuna á því að fjármunir viðskiptavina Kringlunnar glatist.
Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar:
„Innleiðing kerfisins er hluti af þeirri stafrænu vegferð sem Kringlan er á og hefur verið í og er þetta mikilvægur þáttur, það sem heillaði okkur ekki síst við Gift to wallet var hvernig það skapar ný markaðstækifæri fyrir Kringluna í samanburði við fyrri lausnir.“
Yngvi Tómasson, framkvæmdarstjóri Leikbreytis:
„Við erum afar þakklát fyrir það traust sem Kringlan sýnir Leikbreyti og Gift to wallet lausninni með stærstu innleiðingu okkar til þessa. Erlend stórfyrirtæki og verslunarmiðstöðvar hafa verið að sýna lausninni áhuga undanfarið. Kostirnir eru fjölmargir og við spáum meiri ánægju viðskiptavina sem og aukningu á gjafakortsölu í Kringlunni. Ég lýt á uppsetninguna sem byltingu í Íslenskri greiðslumiðlun.“
Á myndinni eru frá vinstri: Birna María Þórðardóttir, Reitir; Mimoza Herta Róbertsdóttir, Leikbreytir; Rut Baldursdóttir, Reitir; Yngvi Tómasson, Leikbreytir; Jón Steindór Þorsteinsson, Leikbreytir; Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra; Inga Rut Jónsdóttir, Kringlan; Aldís Eva Kristjánsdóttir, Kringlan; Karen Eva Kristjánsdóttir, Kringlan; Sólrún Diego, Kringlan; Sigurjón Örn Þórssón, Þróunarfélag Kringlureitsins og Regína Björk Jónsdóttir, Leikbreytir.