Til baka

Hyatt Centric við Laugaveg 176 hlýtur BREEAM Excellent vottun á hönnunarstigi

15 september 2026

BREEAM er eitt útbreiddasta umhverfisvottunarkerfi heims fyrir byggingar og felur í sér heildstætt mat á sjálfbærni þeirra. Meðal annars er horft til orkunotkunar, vatnsnotkunar, efnisvals, úrgangs, samgangna, heilsu og vellíðunar notenda, mengunar og vistfræði.

Hyatt Centric hótelið sem Reitir byggja við Laugaveg 176 hefur hlotið BREEAM International New Construction hönnunarvottun með einkunnina Excellent. Verkefnið fékk 74,4% heildarskor.

Vottunin staðfestir að hönnun Hyatt Centric við Laugaveg 176 uppfylli strangar kröfur BREEAM og að sjálfbærni hafi verið höfð að leiðarljósi frá upphafi við hönnun og undirbúning framkvæmdarinnar. Að framkvæmdum loknum verður verkefnið tekið til lokamats, þar sem staðfest verður að byggingin hafi verið framkvæmd í samræmi við þær forsendur og kröfur sem liggja til grundvallar vottuninni.

Við Laugaveg 176 er eldra húsnæði endurbyggt og stækkað fyrir Hyatt Centric hótel. Þar er meðal annars byggt áfram á burðarvirki gamla sjónvarpshússins í stað þess að rífa það að fullu. Endurnýting hefur þannig verið mikilvægur þáttur í verkefninu og er lögð áhersla á að nýta áfram það sem fyrir er þar sem því verður við komið.

Hönnunarvottunin er mikilvægur áfangi í verkefninu og endurspeglar áherslu Reita á að draga úr umhverfisáhrifum fasteigna og framkvæmda. Markmiðið er jafnframt að stuðla að ábyrgri nýtingu auðlinda, tryggja gæði og skapa vandað og heilnæmt umhverfi fyrir þá sem nýta byggingarnar.

Fleiri fréttir

Kristófer ráðinn framkvæmdastjóri eignaþróunar

Kristófer mun leiða umbreytingaverkefni innan núverandi eignasafns í takt við aukna áherslu félagsins á þróun og framkvæmdir innan eignasafnsins.

Samningur milli Reita og FSRE um hjúkrunarheimili á Akureyri

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur samþykkt tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri og aðilarnir gert með sér samning um verkefnið. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.

Íslandshótel skrifa nýjan kafla fyrir sögufræg hótel

Tvö sögufræg hótel sem hafa sett sinn svip á borgina í áratugi hefja nýjan kafla í dag þegar Íslandshótel taka formlega við rekstrinum. Það eru Hilton Reykjavík við Suðurlandsbraut og Hótel Reykjavík Askja við Nauthólsveg.