Til baka

Kringlan tilnefnd til virtra breskra verðlauna

20 nóvember 2023

Kringlan verslunarmiðstöð hefur hlotið tilnefningu til Revo´s verðlauna fyrir vel heppnaðar framkvæmdir.

Bresku samtökin REVO hafa tilfnefnt Kringluna vegna djarfra framkvæmda.

Kringlan verslunarmiðstöð hefur hlotið tilnefningu til Revo´s verðlauna fyrir vel heppnaðar framkvæmdir.

Tilgangur með Revo verðlaunum að vekja athygli á bestu og árangursríkustu  breytingum fasteigna,  breytingum sem miða af því að uppfylla betur þarfir viðskiptavina og styrkja svæði enn frekar sem vinsælan viðkomustað.

Tilnefning Kringlunnar lýtur að breytingum á 3ju hæð þar sem nú er starfrækt vinsæl mathöll, Kúmen, sem og glæsilegur lúxusbíósalur sem smíðaður var upp úr þaki verslunarmiðstöðvarinnar.

 Verðlaunin verða kynnt þann 6.desember við hátíðlega athöfn í London.

 Við endurbætur hæðarinnar hefur Kringlan notið ráðgjafar breska félagsins M Worldwide, sem sérhæfir sig í lífstílstengdum verkefnum og THG Arkitekta. Paolo Gianfrancesco frá THG leiddi verkefnið sem stóð yfir í tæp 2 ár. “Tilnefning til verðlauna Revo er mikill heiður. Það var mjög djörf hugmynd að byggja lúxussal upp úr þaki Kringlunnar en sú áskorun arktiekta og verkfræðinga gekk  fullkomlega upp.  Sömu sögu er að segja um Kúmen, breytingar þar eru gríðarlega vel heppnaðar  og ánægja viðskiptavina ótvíræð. Við þökkum fyrir það traust sem okkur hjá THG  var sýnt við hönnun og framkvæmd eins stærsta og krefjandi verkefnis sem Kringlan hefur ráðist í.”

 

Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar :  “Við hjá Kringlunni erum mjög stolt af þessari miklu viðurkenningu í umhverfi mikillar samkeppni. Viðskiptavinir kunna vel að meta þessar breytingar og Kúmen er þegar orðinn mjög vinsæll áfangastaður Kringlu – og bíógesta.”

Á revocommunity.org má lesa nánar um Revo og verðlaunaflokka

Fleiri fréttir

Reitir flytja tímabundið í Kringluna 7 í sumar

Í sumar er skrifstofa Reita tímabundið staðsett í Kringlunni 7, á 7. hæð.

Reitir auglýsa eftir yfirlögfræðingi

Reitir leita að öflugum og reynslumiklum einstaklingi í starf yfirlögfræðings og regluvarðar.

Reitir og Háskólinn í Reykjavík hefja þriggja ára samstarf og efna til hugmyndasamkeppni

Reitir og Háskólinn í Reykjavík (HR) hefja þriggja ára samstarf og munu efna til árlegrar hugmyndasamkeppni fyrir nemendur þar sem nýsköpun, sköpunargleði og hugvit fá frjálsan taum.