Til baka

Reitir skila 8,5 tonnum af teppaflísum í hringrásarverkefni

24 febrúar 2026

Reitir eru fyrsta fyrirtækið á Íslandi til þess að taka þátt í ReStart, umfangsmiklu hringrásarverkefni á vegum Tarkett í samstarfi við Gólfefnaval. Reitir tóku nýlega á móti viðurkenningu fyrir framlag sitt til verkefnisins eftir að hafa skilað 8,5 tonnun af teppaflísum sem fara í endurvinnslu.

Reitir hafa skilað um 8.500 kg af notuðum teppaflísum frá ýmsum framkvæmdaverkefnum félagsins til Gólfefnavals, sem sá um að koma efninu í ReStart, endurvinnsluverkefni Tarkett í Hollandi. Magnið jafngildir allt að 2.500 m² af teppaflísum sem ella hefðu farið í urðun eða landfyllingu. Þrátt fyrir flutning erlendis nemur kolefnisspor sendingarinnar einungis um hálfu tonni af CO₂, og með endurvinnslu efnisins með þessum hætti er komið í veg fyrir losun á 11.876 kg af CO₂-ígildum.

Jón Kolbeinn, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, leiðir þátttöku Reita í ýmsum hringrásarverkefnum.

Samstarf sem skilar gagnkvæmum árangri

Gólfefnaval er sérverslun sem býður upp á fjölbreytt úrval gólfefna og þjónustu, en félagið er einnig leigutaki hjá Reitum og lykilbirgi í verkefninu ReStart. Tarkett er birgi Gólfefnavals og þriðji stærsti gólfefnaframleiðandi á heimsvísu.

"Verkefnið sýnir hvernig sjálfbærni og ábyrg nýting auðlinda geta farið saman við skilvirk rekstrarleg markmið. Með því að leggja áherslu á endurvinnslu byggingarefnis styðjum við með virkum hætti við hringrásarhagkerfið, segir Berglind Ósk, forstöðumaður sjálfbærni hjá Reitum."

Hjá Gólfefnavali má fá innsýn inn í hvers konar efni eru notuð, áhrif þeirra á heilsu og endurvinnslumöguleika.

Michael Aastrup, framkvæmdastjóri Tarkett fyrir Danmörku og Ísland, afhenti Guðna Aðalsteinssyni, forstjóra Reita, viðurkenninguna á hátíðlegum síðdegisfundi hjá Gólfefnaval við Höfðabakka og í kjölfarið fluttu fulltrúar Tarkett fræðierindi um ábyrga umhverfishugsun og hvernig markmið um sjálfbærni og viðskipti geta stutt hvort við annað.

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, tekur á móti viðurkenningunni frá Michael Aastrup, framkvæmdastjóra hjá Tarkett (vinstri), og Gunnari Þór Jóhannessyni, framkvæmdastjóra og eiganda Gólfefnavals (hægri).

" Við erum þakklát fyrir samstarfið við Reiti og Gólfefnaval sem fellur fullkomlega að stefnu okkar sem leiðandi fyrirtækis á heimsvísu í sjálfbærum gólfefnalausnum. Við erum staðráðin í að taka ákvarðanir sem skapa sjálfbærari heim með virðingu fyrir náttúruauðlindum, segir Michael Aastrup, framkvæmdastjóri hjá Tarkett."

Hringrásarnálgun mikilvægt stef í sjálfbærnistefnu Reita

Verkefnið er í takt við stefnu Reita í sjálfbærnimálum, þar sem áhersla er m.a. lögð á flokkun úrgangs, og endurvinnslu og endurnýtingu byggingarefnis til að draga úr umhverfisáhrifum og styðja við heilbrigt og sjálfbært samfélag.

Fleiri fréttir

Viðhorfskönnun Reita stendur yfir

Þjónustukönnun Reita stendur yfir þessa dagana. Könnun er framkvæmd af Prósent og við hvetjum alla viðskiptavini til þess að taka þátt.

Ársskýrsla 2025 er komin út

Í skýrslunni má finna góða og yfirgripsmikla umfjöllum um starfsemi Reita, metnaðarfulla vaxtarstefnu félagsins, verkefni og áfanga á árinu, sjálfbærni og hvert við stefnum til framtíðar.

Uppbygging við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit

Reitir fasteignafélag hafa gert uppbyggingarsamkomulag við Reykjavíkurborg um þróun og uppbyggingu á fjölbreyttu íbúðar- og atvinnuhúsnæði við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit.