Til baka

Reitir áforma uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri

15 júní 2026

Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.

Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir munu annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins.

"Við fögnum tækifærinu að fá að leggja þekkingu og reynslu okkar á vogarskálarnar við að byggja upp nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili á Akureyri. Þróun fasteigna og innviða sem samfélagið þarfnast er liður í framtíðarsýn Reita og öldrun þjóðar kallar á stórtæka aukningu hjúkrunarheimila víðs vegar um land. Við munum leggja metnað í örugga og hraða uppbyggingu svo mæta megi þörfinni sem fer vaxandi dag frá degi, segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita."

Hjúkrunarheimilið verður byggt með samblandi af forsmíðuðum og forsteyptum einingum og munu Reitir ráðast í hönnun og framkvæmdirnar í samstarfi við Art-Verk ehf. sem búa yfir farsælli reynslu af slíkri húsnæðisuppbyggingu.

Þessi byggingaraðferð gerir Reitum kleift að stytta framkvæmdatíma, auka sveigjanleika í hönnun og tryggja gæði húsnæðisins.

Alls bárust 10 tilboð í verkefnið frá fimm aðilum og var tilboð Reita metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar.

Eftir töku tilboðs verða frumuppdrættir leigusala fullunnir í samstarfi við rekstraraðila og FSRE. Að því loknu hefst vinna við gerð aðaluppdrátta og fullnaðarhönnun áður en framkvæmdir hefjast svo að fullu.

Fleiri fréttir

Reitir og Hjallastefnan í samstarf um leik- og grunnskóla í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg

Reitir og Hjallastefnan hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um þróun og uppbyggingu á nýjum leik- og grunnskóla í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg sem rís á vegum Reita. Hjallastefnan mun flytja skólastarf sitt í Reykjavík fyrir um 400 börn á leikskólaaldri og í 1.-7. bekk grunnskóla í umhverfisvæna leik- og grunnskólabyggingu í lífsgæðakjarnanum.

Reitir reisa leikskóla í samstarfi við Hýsi

Reitir og Hýsi-Verkheimar hefja samstarf um framleiðslu og uppbyggingu á skólabyggingum fyrir sveitarfélög og aðra aðila. Lausnin felur í sér færanlega skóla hannaða með stöðluðum húsaeiningum sem henta einkar vel fyrir starfsemi leikskóla. Með samstarfinu mæta Reitir og Hýsi vaxandi þörf víða á landinu fyrir húsnæði undir skólastarf.

NIB fjármagnar heilsutengd þróunarverkefni Reita

Reitir hf. hafa undirritað samkomulag um 4,4 ma. kr. verðtryggða lánsfjármögnun frá Norræna fjárfestingarbankanum, NIB, sem styður við tvö uppbyggingarverkefni undir heilsutengda starfsemi.