Til baka

Kristófer ráðinn framkvæmdastjóri eignaþróunar

21 september 2026

Kristófer Þór Pálsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignaþróunar hjá Reitum. Um er að ræða nýtt hlutverk innan félagsins.

Kristófer mun leiða umbreytingaverkefni innan núverandi eignasafns í takt við aukna áherslu félagsins á þróun og framkvæmdir innan eignasafnsins. Hann mun einnig greina tækifæri til áframhaldandi útvíkkunar í nýja eignaflokka og móta langtímastefnu fyrir eignasafnið og einstakar eignir. Kristófer mun vinna þvert á svið félagsins og með viðskiptavinum og öðrum hagaðilum að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eignasafni Reita.

Kristófer býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á sviði fasteignamarkaðar- og þróunar, greininga og fjárfestinga. Hann hefur starfað hjá Reitum í yfir 10 ár, m.a. sem framkvæmdastjóri fjárfestinga, greininga og viðskiptaþróunar og framkvæmdastjóri útleigusviðs.

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita:

„Við sjáum aukin tækifæri til að þróa og umbreyta eignum innan víðfeðms eignasafns Reita sem telur í dag tæplega 500.000 fermetra í 150 fasteignum. Reynsla Kristófers mun nýtast vel á þeirri vegferð enda býr hann yfir mikilli þekkingu á fasteignamarkaði og fjárfestingum í fasteignaverkefnum. Með þessari breytingu erum við enn betur í stakk búin til áframhaldandi sóknar þar sem við leggjum áherslu á ný tækifæri og breytta nýtingu í okkar fjölbreytta og umfangsmikla eignasafni, auk vaxtar í nýjum eignaflokkum og þróunar- og uppbyggingarverkefnum sem gagnast samfélaginu.“

Fleiri fréttir

Samningur milli Reita og FSRE um hjúkrunarheimili á Akureyri

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur samþykkt tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri og aðilarnir gert með sér samning um verkefnið. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.

Hyatt Centric við Laugaveg 176 hlýtur BREEAM Excellent vottun á hönnunarstigi

Hyatt Centric hótelið sem Reitir byggja við Laugaveg 176 hefur hlotið BREEAM International New Construction hönnunarvottun með einkunnina Excellent. Verkefnið fékk 74,4% heildarskor.

Íslandshótel skrifa nýjan kafla fyrir sögufræg hótel

Tvö sögufræg hótel sem hafa sett sinn svip á borgina í áratugi hefja nýjan kafla í dag þegar Íslandshótel taka formlega við rekstrinum. Það eru Hilton Reykjavík við Suðurlandsbraut og Hótel Reykjavík Askja við Nauthólsveg.