Til baka

Eiriksson Brasserie opnar

3 apríl 2019

Eiriksson Brasserie hefur opnað á Laugavegi 77. Veitingastaðurinn er hinn glæsilegasti og býður upp á vandaðan fjölbreyttan mat frá hádegi og fram á kvöld.

Eiriksson Brasserie opnar

Eiriksson Brasserie býður upp á fjölbreyttan mat í brasserie stíl með ítölsku ívafi, þar á meðal steikur og pizzur. Mikið er lagt upp úr góðum drykkjum bæði kokteilum og vönduðu vínúrvali en í kjallara hússins hefur gömlu peningahvelfingu Landsbankans verið breytt í líklega flottasta vínkjallari landsins.

Friðgeir Ingi Eiríksson er forsprakki staðarins, Friðgeir er á meðal þekktustu og færustu kokka landsins en hann stýrði áður Gallery Restaurant á Holtinu og starfaði á Michelin veitingahúsi í nágrenni Lyon í Frakklandi.

Reiti bjóða Eiriksson Brasserie velkomið til starfa

Eirkisson Brasserie Laugavegi 77

Fleiri fréttir

Reitir auglýsa eftir yfirlögfræðingi

Reitir leita að öflugum og reynslumiklum einstaklingi í starf yfirlögfræðings og regluvarðar.

Reitir og Háskólinn í Reykjavík hefja þriggja ára samstarf og efna til hugmyndasamkeppni

Reitir og Háskólinn í Reykjavík (HR) hefja þriggja ára samstarf og munu efna til árlegrar hugmyndasamkeppni fyrir nemendur þar sem nýsköpun, sköpunargleði og hugvit fá frjálsan taum.

Nýtt hjúkrunarheimili verður opnað við Nauthólsveg

Nýtt og glæsilegt 87 rýma hjúkrunarheimili opnar innan tíðar við Nauthólsveg í Reykjavík. Hjúkrunarheimilið verður í byggingu sem áður hýsti skrifstofur Icelandair við Nauthólsveg 50 og verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæðinu og því umbreytt til þess að sinna nýju hlutverki.