Til baka

Auglýst eftir nýjum forstjóra Reita.

Guðjón Auðunsson, fráfarandi forstjóri, hefur greint frá því að hann muni láta af störfum sem forstjóri félagsins í framahaldi af aðalfundi Reita þann 6. mars næstkomandi. Reitir leita að framsýnum og árangursmiðuðum forstjóra til að leiða Reiti áfram í vexti og velgengni.

Guðjón Auðunsson hefur greint stjórn Reita frá því að hann muni láta af störfum sem forstjóri félagsins í framahaldi af aðalfundi þess þann 6. mars næstkomandi.

Starf forstjóra Reita hefur verið auglýst á vinnvinn.is, umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2024.

Guðjón Auðunsson:
„Ég hef starfað sem forstjóri Reita frá ágúst 2010. Á mínum tíma hjá félaginu hefur það gengið í gegnum miklar og spennandi breytingar. Í dag standa Reitir traustum fótum, eignasafn félagsins samanstendur af vönduðum eignum á góðum staðsetningum þar sem umgjörð er sköpuð um fjölbreytta atvinnustarfsemi. Þá býr félagið að afar áhugaverðum möguleikum varðandi fasteignaþróun. Það hafa verið forréttindi að fá að leiða þetta félag síðastliðin 13 ár með hópi frábærra samstarfsmanna. Allt hefur sinn tíma og að mínu mati er rétt að stíga til hliðar núna og eftirláta öðrum að leiða þau spennandi verkefni sem framundan eru hjá Reitum. Ég óska starfsmönnum, stjórn, viðskiptavinum og öðrum hagaðilum félagsins alls hins besta í framtíðinni.“

Þórarinn V. Þórarinsson, formaður stjórnar Reita:
„Fyrir hönd stjórnar Reita vil ég þakka Guðjóni afar farsæl störf í þágu félagsins. Stjórn metur mikils framlag hans til uppbyggingar og mótunar á traustum grunni að starfsemi þess. Guðjón hefur af festu og lipurð leitt mjög vel heppnaða stækkun á eignasafni Reita og jafnframt lagt mikið til undirbúnings að umfangsmikilli uppbyggingu þróunareigna félagsins sem fram undan er.“

Fleiri fréttir

Reitir tilkynna nýjar áherslur og stefnu

Ný stefna hefur í för með sér aukinn vaxtarhraða félagsins á næstu fimm árum og ríkari áherslu á þróunarverkefni með sjálfbærni í forgrunni og fjárfestingu í fjölbreyttari eignaflokkum.

Mikil eftirspurn eftir skuldabréfum Reita

Skuldabréfaflokkurinn REITIR150534 er nýr verðtryggður flokkur.

Horft frá torgi til Sjova
Opinn kynningarfundur vegna íbúðauppbyggingar á Kringlusvæðinu

Í drögum að deiliskipulagstillögu er reiknað með um 450 íbúðum ásamt menningarhúsi.