Til baka

Reitir kaupa Urriðaholtsstræti 2 í Garðabæ

25 júní 2024

Urriðaholt 2 er tæplega 2.500 fermetra skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem hýsir m.a. skrifstofur Bláa lónsins og Krambúðina.

Urriðaholtsstræti 2

Reitir og Urriðaholt ehf. hafa undirritað samkomulag um kaup Reita á félaginu Húsið í hverfinu ehf., sem á tæplega 2.500 fm. skrifstofu- og verslunarhúsnæði við Urriðaholtsstræti 2 í Garðabæ sem byggt var 2022. Húsnæðið hýsir m.a. skrifstofur Bláa lónsins og Krambúðina. Vegin meðallengd leigusamninga hússins er 7,4 ár.

Heildarvirði er 1.460 m.kr. og eru kaupin að fullu fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Leigutekjur á ársgrunni eru um 110 m.kr. Kaupin leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 95 m.kr. á ársgrundvelli þegar tæplega 200 fm. verslunarrými á jarðhæð hefur verið leigt út.

Áætlað er að afhending eignarinnar eigi sér stað eigi síðar en 1. september nk. Afhending mun fara fram þegar fyrirvörum um viðskiptin hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður hefðbundinna áreiðanleikakannana og samþykki stjórnar Reita fasteignafélags hf. fyrir kaupunum.

Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 og á gudni@reitir.is og Kristófer Þór Pálsson, framkv.stj. Fjárfestinga og greiningar í síma 659 1700 og á kristofer@reitir.is.

Fleiri fréttir

Kristófer ráðinn framkvæmdastjóri eignaþróunar

Kristófer mun leiða umbreytingaverkefni innan núverandi eignasafns í takt við aukna áherslu félagsins á þróun og framkvæmdir innan eignasafnsins.

Samningur milli Reita og FSRE um hjúkrunarheimili á Akureyri

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur samþykkt tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri og aðilarnir gert með sér samning um verkefnið. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.

Hyatt Centric við Laugaveg 176 hlýtur BREEAM Excellent vottun á hönnunarstigi

Hyatt Centric hótelið sem Reitir byggja við Laugaveg 176 hefur hlotið BREEAM International New Construction hönnunarvottun með einkunnina Excellent. Verkefnið fékk 74,4% heildarskor.