





























Aðalstræti 2
Skrifstofurými















Loading...
Afhending
Afhending samkomulag
Stærð
441,2 m²
Til leigu hjá Reitum
: Tvær skrifstofuhæðir í Aðalstræti 2. Annars vegar 2. hæð 217,9 m2 og hins vegar 3. hæð 223,3 m2.
Tvær skrifstofuhæðir í hjarta borgarinnar. Hæðirnar skiptast í opin skrifstofurými ásamt lokuðum herbergjum, salerni og kaffikrók. Gott aðgengi er að rýminu og lyfta opnast í rýmið á þriðju hæð.
Nánari upplýsingar veitir Auðunn Sólberg, í síma 770 1018, tölvupóstur audunn@reitir.is
Aðalstræti 2, ásamt bakhúsum sem vísa að Vesturgötu kallast einu nafni Ingólfsnaust því að á þessum stað herma sagnir að Ingólfur Arnarson, fyrsti landnámsmaður Íslands, hafi dregið skip sín í naust og voru tóttir naustsins enn sýnilegar á 18. öld.Eftir að kaupstaður myndaðist inni í sjálfri Reykjavík um 1780 reisti fyrsti kaupmaðurinn hús sín einmitt á þessari lóð. Sá var danskur og hét Sünckenberg. Áður voru verslunarhús á eyjum úti fyrir ströndinni (Hólmskaupstaður).Núverandi framhús, sem snýr að Aðalstræti, er reist árið 1855, en bakhúsin sem voru pakkhús kaupmannsins eru að mestum hluta reist árið 1905.Þá voru húsin í eigu fyrirtækisins H. P. Duus sem rak mikla verslun og skútuútgerð í Reykjavík. Öll húsin voru gerð upp í samræmi við upphaflega gerð þeirra á árunum 1999 til 2003 og þau tengd með tengibyggingu úr gleri.
Reitir bjóða framsýnum fyrirtækjum klæðskerasniðið atvinnuhúsnæði til leigu. Reitir byggja á arfleifð umsvifa sem hófst með byggingu Kringlunnar árið 1987.
Innan eignasafnsins á annan hundrað fasteignir með um 700 leigurýmum auk metnaðarfullra þróunarverkefna.
Á síðari árum hafa Reitir hlúð að sögufrægum byggingum og staðið þannig vörð um íslenskan menningararf á sama tíma og horft er til sjálfbærrar framtíðar.
Kynntu þér þjónustu Reita og fleira skrifstofuhúsnæði til leigu á www.reitir.is/skrifstofur.
Tegund: skrifstofurými
Afhending: Afhending samkomulag
ID: 28
Loading...














