Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir hefur tilkynnt Reitum að tilboði félagsins í útboði um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hafi verið valið og metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar.
Hjúkrunarheimilið mun rísa við Þursaholt 6, það verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun hýsa 140 hjúkrunarrými. Leigutilboð Reita nemur 5.800 kr. á fermetra sem samsvarar 633 m. kr. á ári og er rekstrarávöxtun af framkvæmdinni áætluð um 6% af framkvæmdakostnaði sem gert er ráð fyrir að verði um 8.900 m. kr.
Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins.
Nánari upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 eða á gudni@reitir.is og Birgir Þór Birgisson, framkvæmdastjóri þróunar, í síma 858 5223 eða á birgir@reitir.is