Samfélag og umhverfi
Reitir hafa markað skýra stefnu í átt að sjálfbærni með minni kolefnislosun og hringrásarhugsun í framkvæmdaverkefnum.
Skrunaðu
Vönduð vinnubrögð, hringrásarhugsun og ábyrgð í samfélagsmálum
Markmið Reita er að vera þekkt fyrir vönduð vinnubrögð og ábyrgð í samfélagsmálum, og að vera eftirsóttur vinnustaður og öruggur fjárfestingarkostur. Reitir horfa til hinna 17 heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna við ákvarðanatöku og við setningu reglna og stefna sem félagið starfar eftir. Þau markmiðanna sem snúa hvað mest að starfsemi Reita eru (8) Góð atvinna og hagvöxtur, (11) Sjálfbærar borgir og samfélög og (12) Ábyrg neysla og framleiðsla.
Horfa á myndband
Skref í átt að sjálfbærni og betra samfélagi
Með því að fylgja kröfum BREEAM Communities staðalsins í skipulagningu þróunarreita tryggjum við að hugað sé að sjálfbærni, samnýtingu og heilnæmu umhverfi alveg frá grunni.
Skrifstofa Umhverfisstofnunar við Suðurlandsbraut 24 var fyrsta húsnæðið á Norðurlöndum til að hljóta Svansvottun fyrir endurbætur á húsnæði.
Reitir eru stoltir aðilar að Grænni byggð, Icelandic Green Building Council, samstarfsvettvangi um vistvæna þróun manngerðs umhverfis á Íslandi.
Reitir voru meðal stofnaðila að Votlendissjóðnum. Sjóðurinn var stofnaður með það að markmiði að stuðla að endurheimt votlendis og draga með því úr losun gróðurhúsalofttegunda. Reitir hafa kolefnisjafnað losun í umfangi 1 og 2 til margra ára.
Reitir hafa stutt Specialisterne með húsnæði í Síðumúla í nærri áratug.