
Bjart rými á jarðhæð með stórum gluggum sem ná niður í gólf. Loft eru með endurnýjaðri klæðningu og vandaðri innbyggðri lýsingu. Gólf eru með snyrtilegum gráum flísum. Rýmið er að mestu opið og tilbúið til notkunar fyrir nýjan leigutaka. Í rýminu eru salerni og aðstaða fyrir kaffistofu (lagnir til staðar en skápa vantar). Mögulegt er að Reitir breyti rýminu þannig að það henti nýrri starfsemi. Rýmið er í norðurhluta hússins.
Í kjallara er tæplega 35 fermetra geymsluherbergi sem inniheldur loftræstibúnað en herbergið nýtist einnig vel sem geymsla.
Aðkoma að húsinu er mjög góð. Bílastæði fyrir viðskiptavini eru beint fyrir framan húsið auk þess sem starfsmannabílastæði eru á lóðinni. Í Höfðabakka 9 er starfandi húsvörður með lóðar- og sameignarumsjón. Húsið er í alfaraleið við fjölfarnar götur. Á svæðinu er veitingahús, líkamsrækt, pósthús og fleira. Handan götunnar er matvöruverslun og ýmis þjónusta.
Halldór Jensson, sölustjóri, veitir allar nánari upplýsingar í síma 840-2100 eða í netfanginu halldor@reitir.is.
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.
Reitir fasteignafélag hf.
Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Kt. 711208-0700
Sími +354 575 9000
Almennt: reitir(hjá)reitir.is
Reikningar: bokhald(hjá)reitir.is