
Lager með bjartri skrifstofu og starfsmannaaðstöðu. Hægt er að hafa allt að þrjár innkeyrsluhurðir en Reitir munu aðlaga rýmið að þörfum leigutaka. Lofthæð er 4,50m undir plötu en 3,83m undir bita. Skrifstofurýmið er með góðum gluggum til norðurs og góðri starfsmannaaðstöðu. Möguleiki er á að hafa aðskilda móttöku fyrir viðskiptavini.
Halldór Jensson, sölustjóri, veitir allar nánari upplýsingar í síma 840-2100 eða halldor@reitir.is.
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.