
Gott húsnæði með innkeyrsluhurð fyrir lager eða léttan og snyrtilegan iðnað. Snyrtilegt móttökurými með gönguhurð.
Á Höfðabakka 9 er veitingahús, líkamsrækt, pósthús og fleira. Handan götunnar er matvöruverslun og ýmis þjónusta. Húsið er í alfaraleið við fjölfarnar götur. Rýmið hentar einungis fyrir snyrtilega starfsemi sem á heima með öðrum þjónustufyrirtækjum.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Jensson, sölustjóri í 840-2100.
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.