
Vefpressan, rekstraraðili nokkurra vefmiðla, hefur gert leigusamning við Reiti um húsnæði á 4. hæð í Kringlunni, um er að ræða vandaða nýlega endurnýjaða um 330 fermetra shrifstofuhæð á 4. hæð í turninum í suðurenda Kringlunnar. Vefpressan er rekstraraðili eftirfarandi vefmiðla: pressan.is, eyjan.is og bleikt.is.
Reitir bjóða Vefpressuna velkomna til starfa í Kringlunni.
Þessu tengt:
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.