
Áformað er að byggja um 10.000 m2 atvinnuhúsnæði í Skútuvogi 8, Reykjavík. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja 8.200 m2 að grunnfleti og 11.200 m2 með milligólfum. Fyrst og fremst er horft til þess að á lóðinni rísi nútímalegt vöruhús enda er staðsetning lóðar afar góð með tilliti til vörudreifingar. Önnur starfsemi kemur einnig til greina en í aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir rýmisfrekri verslun, heildsölu, þjónustu og léttum iðnaði.
Lóðin er afar vel staðsett ef horft er til vörudreifingar en stutt er í hafnarsvæði bæði hjá Eimskip og Samskip en einnig er lóðin vel staðsett með tilliti til nýs íbúðarhverfis, Vogabyggðar.
Horft er til þess að hanna og þróa húsið í samstarfi við væntanlegan leigutaka en til greina kemur að semja við tvo eða fleiri aðila um starfsemi í húsinu. Leigutökum gefst því kostur að fá sérhannað húsnæði utan um starfsemi viðkomandi.
Áhugasömum er bent á að hafa samband gegnum netfangið skutuvogur8@reitir.is eða í síma 575-9000.
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.