
Nýtt veitinga- og afþreyingarsvæði, Kúmen, hefur opnað á 3ju hæð í Kringlunni . Á svæðinu eru 17 veitingastaðir í glæsilegu og notalegu umhverfi og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Opið er til kl. 21 öll kvöld vikunnar og því upplagt að koma við í kvöldmat eftir góða verslunarferð í Kringluna. Kúmen er einnig góður valkostur fyrir þá sem hyggja á leikhús - eða bíóferð og upplagt að krydda góða kvöldstund með veitingum fyrir sýningu
Aðkoma að bíóinu hefur fengið nýja ásýnd og er veitingasalan opin fyrir utan sýningartíma. 16 desember opnar stærsti og glæsilegasti lúxussalur landsins með frumsýningu á stórmyndinni Avatar, sem verður sýnd samfellt í sólarhring. Fyrir utan bestu mynd og hljómgæði ná þægindi fyrir gesti nýjum hæðum, en boðið verður upp á legusæti sem og prívat parabekki.
Auk þessa opnar á svæðinu í desember nýtt Ævintýraland, barnagæsla fyrir börn á aldrinum 3-9 ára.
Við bjóðum veitingastaðina á Kúmen velkomna í nýtt húsnæði.
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.
Reitir fasteignafélag hf.
Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Kt. 711208-0700
Sími +354 575 9000
Almennt: reitir(hjá)reitir.is
Reikningar: bokhald(hjá)reitir.is