
Hagar, fyrir hönd Hagkaups, og Reitir hafa endurnýjað leigusamning milli félaganna í Kringlunni. Gildistími nýs samnings er til ársins 2028. Ný verslun Hagkaups verður á einni hæð, í stað tveggja áður, og verður verslunin rúmlega 3.600 fm á 1. hæð í norðurenda verslunarmiðstöðvarinnar. Það verslunarými verður endurnýjað og er ráðgert að opna nýja og endurbætta verslun á haustmánuðum 2017. Stærstur hluti 2. hæðarinnar, eða um 2.600 fm, fer undir nýja H&M verslun, sem ráðgert er að opni seinnihluta árs 2017. Samningar eru síðan á lokastigi við alþjóðlegt fatamerki um að reka um 1.000 fm verslun við hlið H&M á 2. hæðinni í norðurenda Kringlunnar.
Saga Hagkaups og Kringlunnar er samofin, allt frá opnun Kringlunnar árið 1987, en frumkvöðull byggingarinnar var Pálmi í Hagkaup. Það er því Reitum og Kringlunni mikið ánægjuefni að vera Hagkaups, sem ankerisverslunar í Kringlu, skuli áfram vera tryggð til næstu 10 ára.
Nánari upplýsingar gefur Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita í síma 575 9000 eða 660 3320
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.
Reitir fasteignafélag hf.
Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Kt. 711208-0700
Sími +354 575 9000
Almennt: reitir(hjá)reitir.is
Reikningar: bokhald(hjá)reitir.is