
Reykjavik Street Food kynnir í samstarfi við Reykjavíkurborg og Reiti fasteignafélag : „Street Food“ og „Pop Up“ markaðinn BOX - Skeifunni.
BOX – Skeifan opnar fimmtudaginn 7 júní klukkan 12.00 Á svæðinu verða fjöldin allur af söluaðilum bæði af mat og drykk, einnig verður á svæðinu risakjár, frábær tónlistaratriði og pop up búðir (opna þarnæstu helgi). BOX -Skeifunni verður opin alla fimmtudaga til sunnudaga frá 7. júní – 29. júlí
Þeir söluaðilar sem verða á svæðinu fyrstu helgina eru KO:Re, Jömm, Krúska, Magellan, Skræðuvagninn, Naustið, Indican, Flatbökubíllinn, Prikið, Vöffluvagninn, BOX – barinn, og fleirri.
Opnunartími er eftirfarandi:
Fimmtudagar 12.00 – 14.30, 17.00 – 21.30
Föstudagar 12.00 – 14.30, 17.00 – 21.30
Laugardagar 12.00 – 21.30
Sunnudagar 12.00 – 20.00
Dagskrá fimmtudagsins 7. júní er eftirfarandi:
12:00 – 14.30 - Opnum svæðið fyrir almenning! Hádegis grúv og tónlist í boði Símans og Spotify
17.00 -20.00 - Opnunarhátið BOX – Skeifunnar- Fram koma Aron Can, Herra Hentusmjör, Egill Spegill og Dj B – ruff
20.00 Vináttuleikur Íslands og Gana sýndur á Risaskjá - Tilboð í gangi á BOX-barnum í boði Tuborg Rå
Tónlistar dagskrá helgarinnar er eftirfarandi (helgina 8-10 júní.)
Föstudagur: 18.00-20.00 Dj´s (TBC)
Laugardagur: 20.00-20.30 Aron Can
Sunnudagur: 16.00-16.30 Jóipé x Króli
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.