
Veitinga- og skemmtistaðurinn American Bar opnaði nú á laugardaginn 7. mars í húsi Reita að Austurstræti 8-10. Á American Bar er boðið upp á hamborgara, svínarif og kjúklingavængi, í samstarfi við Dirty Burgers and Ribs, auk viskí, kokteila og amerísks bjórs í frosnum glösum. Bræðurnir Hermann og Ingvar Svendsen, eru á meðal þeirra sem standa að baki staðnum, þar eru spiluð rokktónlistarmyndbönd á skjáum en einnig verður boðið upp á sýningu á íþróttaviðburðum og um helgar er von á skemmtistaðastemmingu. Leifur Welding hannaði staðinn að innan, hann hefur komið að hönnun nokkurra vinsælla staða í borginni s.s. Grillmarkaðsins, Fiskfélagsins og Sushi Samba.
Reitir bjóða American Bar velkominn til starfa í Austurstræti.
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.