Viðurkenninguna veittu Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.
Reitir hafa hlotið viðurkenninguna árlega síðan 2015. Viðurkenningin er veitt á grundvelli úttektar á stjórnarháttum félagsins og tekur hún mið af leiðbeiningum um góða stjórnarhætti útgefnum af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi.
Verkefnið Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum var sett á legg fyrir tæpum áratug síðan. Með tilkomu þess var ætlunin að bæta stjórnarhætti fyrirtækja á Íslandi og auka eftirfylgni stjórna þeirra við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi. Í verkefninu felst að öllum fyrirtækjum gefst tækifæri til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda sinna. Einnig er könnuð fylgni við leiðbeiningarnar, almennar reglur og lög sem gilda um starf stjórna.
Skiptiborð Reita er opið milli 9:00 og 16:00. Í gegnum skiptiborð er hægt að fá samband við ÍAV þjónustu allan sólarhringinn, hún getur útvegað iðnaðarmenn til skyndilegra viðbragða við neyðartilfellum.
Reitir fasteignafélag hf.
Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Kt. 711208-0700
Sími +354 575 9000
Almennt: reitir(hjá)reitir.is
Reikningar: bokhald(hjá)reitir.is