Reitir fögnuðu þrítugsafmæli árið 2017. Reksturinn gekk vel, árið var viðburðaríkt og skipulag samstæðu Reita fasteignafélags var lagað að nýjum áherslum. Fjöldi nýrra leigusamninga var gerður auk margvíslegra endurnýjana og viðauka. Horft var til spennandi framtíðarverkefna með lóðakaupum og kynnt voru úrslit í samkeppni um metnaðarfulla framtíðaruppbyggingu á Kringlureitnum og við Laugaveg.