Um félagið

um_felagid_new.png (345385 bytes)

Stærsta þjónustufyrirtækið á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði

Fasteignafélagið Reitir er stærsta þjónustufyrirtækið á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði á Íslandi. Reitir hafa yfir að ráða fjölbreyttu fasteignasafni sem samanstendur af um 130 fasteignum sem staðsettar eru víðsvegar um landið. Innan fasteignsafnsins má finna til leigu skrifstofuhúsnæði, verslunarhúsnæði ogiðnaðarhúsnæði.  Fjölbreytt úrval fasteigna gerir okkur kleift að bjóða upp á margar lausnir fyrir viðskiptavini hvað varðar staðsetningu, tegund húsnæðis og stærð.

Innan fasteignasafns Reita má finna verslunarhúsnæði í helstu verslunarmiðstöðvum landsins, fjölbreytt skrifstofuhúsnæði og margskonar lager- og iðnaðarhúsnæði. Meðal þekktra fasteigna má nefna Kringluna, Hótel Hilton, Kauphallarhúsið, Holtagarða og nokkrar af perlum íslenskrar byggingarsögu sem staðsettar eru í miðbæ Reykjavíkur.

Starfsfólk Reita býr yfir mikilli reynslu og þekkingu þegar kemur að vali á atvinnuhúsnæði, umsjón með endurbótum og samningagerð á þjónustu í kringum rekstur fasteigna. Við viljum taka þátt í því með viðskiptavininum að aðlaga húsnæði að þeirra þörfum. Við bjóðum upp á ráðgjöf hvað varðar endurbætur eða breytingar á húsnæði. Þekking og reynsla okkar á þessu sviði hefur skilað miklum árangri fyrir viðskiptavini okkar.

Við þjónustum stór og smá fyrirtæki sem og einstaklinga. Meðal helstu leigutaka okkar eru Reykjavíkurborg, Hagar, Fasteignir Ríkisins, Landsbankinn, Íslandsbanki, Icelandair hotels, Actavis og NTC.

emergency_banner.png (56415 bytes)

Fréttir

24.janúar.2012

Sambíó í Kringlunni

Reitir fasteignafélag og Sambíó hafa endurnýjað leigusamning um húsnæði í Kringlunni.
Nánar
26.október.2011

Reebok Fitness opnar í Holtagörðum

Reebok Fitness opnar í nóvember glæsilega líkamsræktarsöð í Holtagörðum.
Nánar
17.ágúst.2011

Afkoma Reita fasteignafélags á fyrri árshelmingi

Rekstrarhagnaður Reita fasteignafélags hf. fyrir fjármagnsliði fyrstu 6 mánuði ársins 2011...
Nánar
08.ágúst.2011

Dýraríki hefur opnað stórverslun í Holtagörðum

Dýraríki hefur opnað glæsilega stórverslun á 2 hæð í Holtagörðum.
Nánar