Sambíó í Kringlunni
Reitir fasteignafélag og Sambíó hafa endurnýjað leigusamning um húsnæði í Kringlunni.
Farið verður í umfangsmiklar endurbætur á húsinu á árinu 2012, m.a. verða sæti, gólfefni, veggklæðningar og fl. Endurnýjað, enda stefnan sett á að kvikmyndahúsið verði með því besta sem völ er á hérlendis. Áætluð verklok eru í ágúst 2012, eða fyrir 25 ára afmæli Kringlunnar.
Sérstaða Sambíóanna í Kringlunni hefur ætíð verið til staðar en það var m.a. fyrsta stafræna kvikmyndahúsið á Íslandi (2007) og jafnframt fyrsta kvikmyndahúsið í verslunarmiðstöð hérlendis, auk þess að vera fyrsta kvikmyndahúsið með THX hljóðkerfi í öllum sölum. Í dag er Kringlubíó eina kvikmyndahúsið með sérmerktum/númeruðum sætum.
Kvikmyndahúsið hefur í áraraðir sýnt bíómyndir frá stærstu kvikmyndaverum heims sbr. Warner Bros, Walt Disney, Paramount, Dreamworks ásamt því að sýna íslenskar bíómyndir og haldnar hafa verið kvikmyndahátíðir . Auk sýninga á bíómyndum hefur verið boðið upp á beinar útsendingar frá Metrópólitan óperunni en sýnt hefur verið frá henni í Sambíóunum Kringlunni við góðar undirtektir landsmanna.
Þess má geta að það birtist frétt þess efnis í lok ársins 2011 að öllu starfsfólki Sambíóanna í Kringlunni hefði verið sagt upp störfum vegna óvissu um rekstur bíóhússins til framtíðar. Með undirritun þessa samnings við Reiti hefur nánast öllu starfsfólki verið boðið áframhaldandi starf. Þess má hins vegar geta með nýrri tækni verða bíósýningar eftirleiðis tölvustýrðar en slíkt fyrirkomulag hefur verið að ryðja sér farveg um allan heim.
Til baka