Fasteignafélagið Reitir hefur yfir að ráða fjölbreyttu fasteignasafni sem samanstendur af um 130 fasteignum sem staðsettar eru víðsvegar um landið. Innan fasteignsafnsins má finna til leigu skrifstofuhúsnæði, verslunarhúsnæði og iðnaðarhúsnæði. Fjölbreytt úrval fasteigna gerir okkur kleift að bjóða upp á margar lausnir fyrir viðskiptavini hvað varðar staðsetningu, tegund húsnæðis og stærð.
Innan fasteignasafns Reita má finna nokkra af helstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins, fjölda glæsilegra skrifstofu- og hótelbygginga, iðnaðarhúsnæði og fleira. Meðal þekktra fasteigna má nefna Kringluna, Hótel Hilton, Kauphallarhúsið, Holtagarða og nokkrar af perlum íslenskrar byggingarsögu sem staðsettar eru í miðbæ Reykjavíkur.