Reitir bjóða upp á sólarhrings neyðarþjónustu fyrir alla sína viðskiptavini. Þess fyrir utan starfa hjá Reitum tveir viðskiptastjórar sem hafa það að meginmarkmiði að þjónusta viðskiptavini eins vel og mögulegt er og leiða til lykta ýmis málefni leigutaka.
Reitir hafa til umsjónar fjölda húsfélaga og sameigna þar sem séð er til þess að allt frá þrifum og orkukaupum að öryggisgæslu og bókhaldsþjónustu sé sinnt af fagmennsku á hagkvæman hátt. Sem liður í þessu hafa Reitir gert samninga við húsumsjónarmenn fyrir stærri fasteignir, þeir eru tengiliðir við leigutaka, sinna almennu eftirliti, vakta samninga auk þess að fá verktaka í ýmis tilfallandi störf.
Fasteignaþjónustan tekur til eftirfarandi þátta eftir þörfum og óskum viðskiptavina:
- Ræsting
- Lóðaumhirða
- Veggjakrot
- Snjómokstur
- Öryggisgæsla
- Brunavöktun
- Gluggaþvottur
- Gámaþjónusta
- Loftræsikerfi
- Orkuvöktun
- Bókhaldsþjónusta
- Sólarhringsneyðarþjónsuta
- Ofnakerfi
- Orkueftirlit