Framsýni og aðlögunarhæfni
Framsýni er lykilþáttur í rekstri Reita, en aðlögunarhæfni er forsenda framþróunar. Rekstur Reita fór ekki varhluta af ástandinu á árinu 2020 frekar en margra annarra fyrirtækja í samfélaginu. Til að glíma við afleiðingar faraldursins var gripið til ýmissa ráðstafana til að efla félagið.